Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 3301–3350 af 4327
Raða eftir:
09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-525/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014

I kærði synjun Þjóðskrár á því að afhenda honum íbúaskrár fyrir Vestur og Austur Barðastrandarsýslu. Synjunin var hvorki byggð á fyrirvaranum í 13. gr. upplýsingalaga, né því að skrárnar hefðu ekki verið fyrirliggjandi þegar beiðnin barst, heldur einkum því að um væri að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar. I gæti ekki fengið þær sér til gamans. Úrskurðarnefndin kvað það ekki hafa áhrif á rétt kæranda að hann setti beiðni sína fram til gamans. Til voru tvær tegundir af skránni og nefndin taldi hvoruga þeirra hafa að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi laga nr. 77/2000. Í 10. gr. þeirra laga væri hins vegar sérregla um kennitölur. Í ljósi hennar, og þar sem upplýsingar um kennitölur ættu ekki erindi við þá sem ekki þyrftu á þeim að halda, féllu þær undir 9. gr.…

07. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-524/2014. Úrskurður frá 1. apríl 2014

A kærði synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni nokkurra erlendra vátryggjenda um aðgang að gögnum, sem þeir hugðust leggja fram í bótamálum sem höfðuð hafa verið á hendur þeim.Úrskurðarnefndin lagði til grundvallar að ákvæði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 væri sérstakt þagnarskylduákvæði. Hins vegar var deilt um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. ætti við, en samkvæmt því má, við rekstur einkamála, upplýsa um atriði sem þagnarskylda gildir annars um þegar eftirlitsskyldur aðili er gjaldþrota eða þvinguð slit fara fram. Nefndin taldi LBI hf. hafa verið í aðstöðu sem leggja mætti að jöfnu við að hafin væru gjaldþrotaskipti - og því verið í þvinguðum slitum í skilningi ákvæðisins. Hins vegar tengdist ákvæðið aðeins gagnaöflun fyrir dómi, innan ramma laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.…

07. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-520/2014. Úrskurður frá 1. apríl 2014

Þrír einstaklingar kærðu afgreiðslu sýslumannsembætta á beiðnum um að fá afhentar upplýsingar um kjör löglærðra fulltrúa hjá embættunum. Þeir höfðu fengið töflu yfir föst launakjör fulltrúa hjá sýslumannsembættum utan Reykjavíkur, en á þeirri töflu koma hvorki fram nöfn umræddra fulltrúa né hjá hvaða sýslumannsembættum þeir starfa. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál lagði fyrir tilgreinda sýslumenn að afhenda kærendum upplýsingar um föst launakjör umræddra fulltrúa.

03. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins

Ræða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins 3. apríl 2014.

03. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-523/2014. Úrskurður frá 1. apríl 2014

A kærði synjun embættis sérstaks saksóknara á beiðni um aðgang að skýrslum tveggja hópa sérfræðinga, sem unnar voru að beiðni sérstaks saksóknara. Í synjun sinni hafði sérstakur saksóknari m.a. leiðbeint A um kærurétt til úrskurðarnefndar um upplýsingamála. Hann kvað skýrslurnar vera hluta sakamálarannsóknar og þær féllu utan gildissviðs upplýsingalaga. Hann varð ekki heldur við beiðni úrskurðarnefndarinnar um að fá afrit af þeim. Að mati nefndarinnar er engum vafa undirorpið að honum er skylt að afhenda henni skýrslunar. Framfylgi stjórnvald ekki þeirri skyldu sinni að afhenda slík gögn vekur það bæði tortryggni nefndarinnar og almennings. Þar sem nefndin hefur hins vegar ekki nægilegar ríkar valdheimildir, s.s.…

03. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-522/2014. Úrskurður frá 1. apríl 2014

H kærði synjun Framkvæmdasýslu ríkisins á beiðni um afhendingu gagna varðandi tiltekið útboð. Framkvæmdasýslan vísaði m.a. til þess að H nyti ekki réttar samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga. Úrskurðarnefndin tók ekki afstöðu til þess hvort H ætti aðgangsrétt sem aðili stjórnsýslumáls, eða hvort útboðið væri stjórnsýslumál í skilningi stjórnsýslulaga, en hún tók efnislega afstöðu til réttar hans skv. upplýsingalögum.  Hún taldi ekkert vera í umræddum gögnum sem gæti valdið öðrum aðila tjóni þótt H fengi aðgang að þeim, eða að aðgangur H gæti raskað samkeppnisstöðu aðila á markaði. Því ætti H rétt til aðgangs, þ.e. sama rétt og almenningur á til aðgangs að slíkum gögnunum. Þegar af þeirri ástæðu reyndi ekki á hvort hann ætti sérstakan rétt til aðgangs á grundvelli 14. gr.…

03. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-521/2014. Úrskurður frá 1. apríl 2014

A kærði synjun Tollstjóra á að verða við beiðni hans um aðgang að verklagsreglum varðandi tollframkvæmd. A hafði fengið hluta þeirra í hendur en verið synjað að öðru leyti, m.a. vegna þess að Tollstjóri gæti ekki skorið úr um hvort meðal samantekinna gagna væru verklagsreglur (í skilningi 12. tl. 40. gr. tollalaga). Úrskurðarnefndin rengdi það mat Tollstjóra ekki og vísaði málinu að því leyti frá. Hins vegar lagði hún fyrir Tollstjóra að afhenda A verklagsreglur um inn-, út- og umflutning villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu og verklagsreglur um inn- og útflutning menningarverðmæta og náttúruminja.

02. apr. 2014Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016

febrúar 2014 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016

01. apr. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ísland og Grænland – samstarf vinaþjóða í norðri

Opnunarávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á ráðstefnu í Norræna húsinu, 1. apríl 2014.

06. mar. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á fundi efnahags- og þróunarráðs Edmonton

Ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á fundi efnahags- og þróunarráðs Edmonton í Kanada, sem haldinn var í Art Gallery of Alberta, 6. mars 2014.

17. feb. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-519/2014. Úrskurður frá 13. febrúar 2014

M kærði synjun Skútustaðahrepps á beiðni hans um upplýsingar varðandi álagningu sorphirðugjalda. Fyrra mál hans hafði verið fellt niður, í ljósi ákvæða um kærufrest. Sendi hann þá inn nýja kæru eftir að hreppurinn synjaði kröfu hans um gögn er bæru með sér upplýsingar um fyrir hvaða fasteignir/fyrirtæki - og hvaða ekki - greitt væri sorphirðugjald. Einnig ósk hans um upplýsingar um  í hvaða sorphirðugjaldaflokki fasteignir/fyrirtæki væru, um fjárhæðir sorphirðugjalda, um fjölda fasteigna sem flokkuðust sem sumarhús/frístundahús og nákvæmlega um hvernig sorphirðugjald fyrir fyrirtæki og býli í rekstri væri ákveðið. Úrskurðarnefndin taldi lista yfir álögð sorpgjöld 2013, þar sem fyrirtækjum er raðað eftir gjaldflokkum, m.a. hafa að geyma persónuupplýsingar.…

17. feb. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-518/2014. Úrskurður frá 13. febrúar 2014

M kærði synjun Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu á beiðni um að afhenda honum afrit af reikningum vegna læknadaga. Að virtum gildistökuákvæðum upplýsingalaga varð það niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu bæri að afhenda kæranda afrit af þeim reikningum sem það gaf út vegna læknadaga er haldnir voru árið 2013. Hins vegar var synjun þess, að því er varðaði reikning vegna læknadaga árið 2012, staðfest.

17. feb. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-516/2014. Úrskurður frá 13. febrúar 2014

M kærði synjun Ríkiskaupa á beiðni hans um gögn. Beiðnin laut að gögnum sem nefndin hafði þegar tekið afstöðu til í eldri úrskurði sínum (nr. A-431/2012) en í honum er lagt fyrir landlækni að afhenda gögnin. Þetta eru gögn um rammasamninga, gögn vegna útboðs um kaup á bóluefni í almennum bólusetningum og tilboðsgögn vegna útboða. Niðurstaða nefndarinnar í hinum nýja úrskurði (A-516/2014) var sú að Ríkiskaupum bæri, eins og landlækni, að afhenda kæranda umrædd gögn enda hefðu þau ekki þegar verið afhent honum.

12. feb. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á Viðskiptaþingi

Ræða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á Viðskiptaþingi 12. febrúar 2014 á Hilton Reykjavík Nordica.

04. feb. 2014Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016

febrúar 2014 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016

31. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-517/2014. Úrskurður frá 28. janúar 2014

Af hálfu TM Software Origo ehf. var gerð krafa um frestun réttaráhrifa úrskurðar nr. A-497/2013. Úrskurðarorð þess úrskurðar beinast að embætti landlæknis og ekki TM Software Origo ehf. Voru þegar af þeirri ástæðu ekki talin vera lagaskilyrði til þess að fjalla efnislega um kröfu félagsins um frestun réttaráhrifa. Varð því að vísa henni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

31. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-515/2014. Úrskurður frá 28. janúar 2014

Af hálfu Hafnarfjarðarbæjar hafði verið sett fram krafa um frestun réttaráhrifa úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. A-508/2013 og sú krafan verið rökstudd með vísan til 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Samkvæmt því ákvæði er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast, hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Að mati nefndarinnar hafði ekkert komið fram er sýndi að þetta ætti við og fyrir hendi væru lagaskilyrði til þess að fresta réttaráhrifum umrædds úrskurðar. Var kröfunni því hafnað.

31. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-514/2014. Úrskurður frá 28. janúar 2014

A kærði þá ákvörðun Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, að synja beiðni hans um afrit af endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings fyrir árið 2012 og bréfum umsækjenda sem óskað höfðu eftir skriflegum rökstuðningi vegna ráðningar í starf framkvæmdastjóra Höfða. Það var niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að Höfða bæri að veita kæranda aðgang að endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings fyrir árið 2012, en beiðni um aðgang að bréfum þriggja umsækjenda um beiðni um rökstuðning vegna ráðningar framkvæmdastjóra Höfða var vísað frá.

31. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-513/2014. Úrskurður frá 28. janúar 2014

Kærð var synjun Hafnarfjarðarkaupstaðar á því að verða við beiðni um að fá afrit af minnisblaði sem ritað var í aðdraganda ákvörðunar um fjárhagsaðstoð við íþróttafélagið Hauka. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi umrætt minnisblað hafa að geyma upplýsingar sem skýrðu forsendur ákvörðunar bæjarráðs um að semja við Hauka um kaup á hlut í mannvirkjum þeirra að Ásvöllum. Þær upplýsingar kæmu ekki annars staðar fram. Var það því niðurstaða nefndarinnar að Hafnarfjarðarkaupstaður skyldi afhenda kæranda afrit af minnisblaðinu.

21. jan. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Viðskiptatækifæri á norðurslóðum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hélt í morgun opnunarerindi á morgunverðarfundi um viðskiptatækifæri á norðurslóðum.

31. des. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Áramótaávarp forsætisráðherra 2013

Áramótaávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, 31. desember 2013.

31. des. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Horfum bjartsýn til framtíðar

Áramótagrein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2013.

18. des. 2013Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

Vísinda og tækniráð - Stefna 2013 til 2016 – drög að útgáfu

desember 2013 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Vísinda og tækniráð - Stefna 2013 til 2016 – drög að útgáfu Vísinda og tækniráð - Stefna 2013 til 2016 – drög að útgáfu

18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-512/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013

A kærði ákvörðun Borgarbyggðar um að synja beiðni hans um gögn sem tengdust máli sveitarfélagsins og úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um sorphirðugjald. Með vísun til undanþáguákvæðis um bréfaskipti tengd dómsmálum, eða athugun á höfðun slíks máls, var synjun Borgarbyggðar að hluta til staðfest. A.ö.l. var Borgarbyggð gert að afhenda kæranda, A, afrit af tilgreindum gögnum.

18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-511/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013

A kærði  afgreiðslu Ríkiskaupa á beiðni hans um gögn. Kæran laut efnislega að sömu gögnum og hann hafði áður óskað eftir að fá frá landlækni – og  nefndin hafði úrskurðað um þá ósk (sjá A-430/2012, A-431/2012 og A-433/2012). A taldi hins vegar að misbrestir hefðu orðið á því hjá landlækni að afhenda gögn samkvæmt þeim úrskurðum. Því hafði hann snúið sér til Ríkiskaupa, sem einnig höfðu gögnin undir höndum, en fengið synjun. Þá synjun kærði hann til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Hún kvað menn eiga rétt á að óska eftir sömu gögnum hjá öðru stjórnvaldi, sem einnig hefði þau í vörslu sinni, m.a. til að ganga úr skugga um að þau væru eins hjá báðum stjórnvöldum, og lagði fyrir Ríkiskaup að afhenda A umrædd gögn.

18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-510/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013

A kærði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að tilteknum gögnum. Beiðni hans hafði  upphaflega lotið að fjórum atriðum/gögnum en þar af hafði nefndin þegar, með úrskurði A-490/2013, tekið afstöðu til þriggja. Eftir stóð að fjalla um gögn stýrinefndar, sem í sátu fulltrúar þriggja ráðuneyta, varðandi endurreisn stóru íslensku viðskiptabankanna. Úrskurðarnefndin vísaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu beiðni um aðgang að „þeim greinargerðum, minnisblöðum og öðrum gögnum sem höfð voru til hliðsjónar um ákvörðun nefndarinnar um þá leið sem farin var í heimildarlausri einkavæðingu Nýja Kaupþings hf.“ Hins vegar lagði hún fyrir ráðuneytið að afhenda kæranda tilteknar fundargerðir stýrinefndarinnar.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um verkefnastjórnun fyrir Stjórnarráðið

Í handbókinni er fjallað um helstu tegundir verkefna í Stjórnarráðinu, verkefnayfirlit, verkefnavinnu og samsetningu verkefnishópa. Gerð er ítarleg grein fyrir verkefnisáætlunum og eyðublaði fyrir slíkar áætlanir í málaskrá Stjórnarráðsins.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um verkefnastjórnun fyrir Stjórnarráðið

Í handbókinni er fjallað um helstu tegundir verkefna í Stjórnarráðinu, verkefnayfirlit, verkefnavinnu og samsetningu verkefnishópa. Gerð er ítarleg grein fyrir verkefnisáætlunum og eyðublaði fyrir slíkar áætlanir í málaskrá Stjórnarráðsins.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um opinbera stefnumótun og áætlanagerð

Í handbókinni er gerð grein fyrir grunnatriðum stefnumótunarfræða, mismunandi umfangi stefnumótunar og algengum afurðum slíkrar vinnu í ráðuneytum og stofnunum. Gefið er yfirlit yfir hið almenna stefnumótunarferli og þau sex skref sem þar eru lögð til grundvallar.

17. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Handbók um opinbera stefnumótun og áætlanagerð

Í handbókinni er gerð grein fyrir grunnatriðum stefnumótunarfræða, mismunandi umfangi stefnumótunar og algengum afurðum slíkrar vinnu í ráðuneytum og stofnunum. Gefið er yfirlit yfir hið almenna stefnumótunarferli og þau sex skref sem þar eru lögð til grundvallar.

13. des. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Leggur til breytingu á gjöldum af póstsendingum

Starfshópur vegna samkeppnisstöðu póstverslunar hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Helstu tillögur starfshópsins eru þær að lagt er til að erlendum fyrirtækjum, sem selja vörur og póstleggja til Íslands, verði heimilt að innheimta og skila virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum af þeim vörum sem seldar eru til landsins.

30. nóv. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána

Ríkisstjórnin kynnir í dag aðgerðaáætlun með það að markmiði að lækka húsnæðisskuldir heimila í landinu.

26. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-509/2013. Úrskurður frá 20. nóvember 2013

Landlæknir krafðist þess að úrskurðarnefnd um upplýsingamál myndi fresta réttaráhrifum úrskurðar nr. A-497/2013, dags. 23. september 2013. Nefndin fór yfir gögn málsins en taldi ekkert nýtt hafa komið fram er sýndi að fyrir hendi væru lagaskilyrði til þess að fresta réttaráhrifum úrskurðarins. Þá sá hún ekki ástæðu til þess að afturkalla úrskurðinn að eigin frumkvæði enda benti ekkert til þess að hann væri haldinn slíkum annmörkum að hann væri ógildanlegur að lögum.  Var því úrskurðað þannig að kröfu landlæknis um frestun réttaráhrifa var hafnað.

26. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-508/2013. Úrskurður frá 20. nóvember 2013

Kærð var sú ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að synja um aðgang að lánssamningi sem bærinn gerði við FMS Wertmanagement. Áður hafði verið úrskurðað í því máli (úrsk. nr. A-474/2013) en þann úrskurð hafði orðið að fella úr gildi vegna efnisannmarka. Því var kveðinn upp nýr úrskurður en efnislega varð niðurstaðan í megindráttum sú sama, þ.e. að veita skyldi aðgang að samningnum. Þó var gerð breyting varðandi tilteknar útstrikanir.

26. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-507/2013. Úrskurður frá 20. nóvember 2013

Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni um að fá afrit af hlutum fundargerða nefndar um fjármálastöðugleika þar sem rætt er um málefni L hf. M.a. var metið hvort um vinnuskjöl væri að ræða, en niðurstaðan varð sú að svo væri ekki. Það varð niðurstaða nefndarinnar að ráðuneytinu bæri að afhenda kæranda afrit af þeim hlutum fundargerða þar sem rætt hafði verið um málefni félagsins, á tilgreindu tímabili.

13. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra við opnun sýningar á Íslensku teiknibókinni

Ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við opnun sýningar á Íslensku teiknibókinni í Gerðarsafni, Kópavogi, 13. nóvember 2013. Ávarpið er á dönsku og íslensku.

11. nóv. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ítarlegar tillögur frá hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar

Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar hefur skilað frá sér tillögum sínum en þær taka til allra helstu þátta ríkisrekstrarins og allra stærri þjónustu- og stjórnsýslukerfa ríkisins. Hagræðingarhópurinn hefur ekki lagt áherslu á beinar niðurskurðartillögur heldur á kerfisbreytingar sem beinast að breytingum á áherslum, aðferðum og skipulagi.

11. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-506/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði synjun Hörgársveitar (H) á beiðni um aðgang að gögnum varðandi kaup H á eignarhluta Íslandsbanka hf. í Hrauni í Öxnadal ehf. A vísaði til þess að hún og eiginmaður hennar ættu einstaklingsbundinna hagsmuna að gæta, og ættu því rétt til aðgangs samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi upplýsingarnar ekki hafa slík tengsl við þessa einstaklinga að vinnsla með þær gæti haft áhrif á hagsmuni þeirra. Því gilti umrædd grein ekki um aðgang þeirra að gögnunum.

11. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-505/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabær á beiðni hans um gögn um samskipti bæjarins við lögmann. Þau tengdust starfsmannamáli sem bærinn hafði til meðferðar, n.t.t. ágreiningsmáli milli bæjarins og tilgreinds starfsmanns um túlkun á ákvæðum kjara- og ráðningarsamnings. Gögnin voru á formi tölvupósts þar sem fjallað var um svigrúm nafngreinds starfsmanns Vestmannaeyjabæjar til sveigjanlegs vinnutíma. Þessi póstur var talinn til gagna máls varðandi starfssamband í skilningi ákvæðis 1. málsgr. 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Það var því niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að réttur kæranda skv. 5. gr. upplýsingalaga tæki ekki til tölvupóstsins og var ákvörðun Vestmannaeyjabæjar því staðfest.

11. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-503/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði synjun Seðlabanka Íslands um afhendingu gagna varðandi eftirlit samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og tengdum stjórnvaldsfyrirmælum. Bankinn taldi umrædd gögn falla undir 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001.  Varðandi skjölin: a) Meðferð og skráning upplýsinga um gjaldeyrisviðskipti, b) Verklagsreglur almenns eftirlits og c) Verklagsreglur við afhendingu mála úr eftirliti, leit úrskurðarnefnd um upplýsingamál til þess að bankinn hefði sett sér þessar reglur til þess að rækja lögbundið hlutverk sitt. Telja mætti skjölin varða hann sjálfan sérstaklega, enda gæti það beinlínis auðveldað sniðgöngu á lögunum, og gert eftirlit hans að sama skapi erfiðara, yrðu þau gerð opinber. Því gætu þau fallið undir ákvæðið.…

08. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-502/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 2013

A kærði, fyrir hönd Flugvirkjafélags Íslands, afgreiðslu Flugmálastjórnar Íslands á beiðni þess um aðgang að upplýsingum um hvort nýstofnað fyrirtæki hefði sótt um EASA part-145 starfsleyfi til að viðhalda hjólum, bremsum og öðrum íhlutum. Umsókn R hafði ekki borist Flugmálastjórn Íslands þegar henni barst umrædd beiðni - en þegar málið kom til úrskurðar hafði Flugmálastjórn ákveðið að umsóknin félli undir beiðnina, og að verða ekki við henni. Flugmálastjórn vísaði í fyrsta lagi til 1. mgr. 7. gr. laga nr. 100/2006. Úrskurðarnefndin taldi það vera sérákvæði um þagnarskyldu en að umsókn R félli ekki undir það. Þá ætti 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 ekki við. Í öðru lagi vísaði Flugmálastjórn til ákvörðunar sinnar nr. 1/2009, sbr. auglýsingu nr.…

07. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Skýrsla forsætisráðherra til Alþingis um þingsályktun um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti munnlega skýrslu á Alþingi, 7. nóvember 2013, um þingsályktun um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna.

07. nóv. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-501/2013. Úrskurður frá 7. nóvember 3013

A kærði, f.h. eigenda jarðar, synjun sýslumanns um að veita þeim aðgang að öllum gögnum tiltekins sáttamáls um landamerki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með sýslumanni að málið félli utan valdmarka hennar, enda hefði hann komið að sáttameðferðinni sem handhafi stjórnsýsluvalds og upplýsingalög tækju til allrar stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Þá var ekki á það fallist með honum að hér mætti lögjafna frá vissum undantekningum frá meginreglum um upplýsingarétt og heldur ekki á það að kærendur gætu ekki átt aðild að þessu máli fyrir nefndinni því þeir hefðu ekki átt aðild að umræddu sáttamáli. Loks féllst nefndin ekki á að þetta væru upplýsingar sem sanngjarnt væri  og eðlilegt að færu leynt.…

29. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra um formennskuáætlun Íslands

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014, á þingi Norðurlandaráðs, 29. október 2013.

14. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-500/2013. Úrskurður frá 10. október 2013

M kærði þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja honum um aðgang að gögnum varðandi Kaupþing banka hf.  Nánar tiltekið um a) aðgang að öllum skjölum er varða mál sem tilgreind voru í kafla IV við bréf sem sett var fram í 11 tölusettum liðum, b) aðgang að öllum  gögnum og skjölum sem greint var frá í fylgiskjali við það bréf, en þessi hluti beiðninnar var nánar tilgreindur í 14 liðum og 14 undirliðum og c) aðgang að þeim gögnum og skjölum sem greint var frá í fylgiskjali við bréf sem sett var fram í 18 liðum og 11 undirliðum. Þjóðskjalasafnið hafði ekki talið upplýsingabeiðnina uppfylla lagaskilyrði en úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki hafa verið svo almenna að ekki hafi verið unnt að afgreiða hana efnislega, a.m.k. að hluta til.…

14. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-499/2013. Úrskurður frá 10. október 2013

A kærði afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að gögnum varðandi Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann óskaði eftir a) gögnum sem ráðuneytið kynni að hafa vegna breytingartillögu meirihluta fjárlaganefndar við aðra umræðu fjárlaga ársins 2012 og b) gögnum sem ráðuneytið kynni að hafa vegna tiltekinnar breytingartillögu á fjáraukalögum fyrir árið 2011. Það varð niðurstaða úrskurðarnefndar að ráðuneytinu bæri að afhenda A tilgreind skjöl. Einnig skyldi honum afhent tiltekið bréf ráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis varðandi breytingar á frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2011 vegna kjarasamninga. Þá skyldi afhenda honum bréf til fjárlaganefndar Alþingis, sem m.a. varðaði breytingar á frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012.…

14. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-498/2013. Úrskurður frá 10. október 2013

A kærði þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja honum um aðgang að skýrslu sem B gaf fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit til þess að þótt löggjafinn hafi með skýrum hætti ákveðið að þau gögn sem rannsóknarnefndin aflaði vegna rannsóknar sinnar skyldu færð á Þjóðskjalasafn Íslands, og að um aðgang að þeim skyldi fara eftir ákvæðum upplýsingalaga, hefðu þau lög að geyma mikilvæga undantekningu á upplýsingarétti almennings vegna einkahagsmuna einstaklinga. Við mat á því hvort þessi undanteking ætti við skipti máli að þeim sem gáfu skýrslur fyrir rannsóknarnefndinni var gjarnan heitið trúnaði um upplýsingagjöf þeirra.…

10. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Lokaerindi forsætisráðherra á ráðstefnu um þróun orkumála á norðurslóðum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti lokaerindi á
ráðstefnu um þróun orkumála á norðurslóðum, Arctic Energy Summit, sem haldin var á Akureyri 8.-10. október.

03. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-497/2013. Úrskurður frá 23. september 2013

Kærð var sú  ákvörðun landlæknis að synja um aðgang að kaupsamningi milli hans og TM Software – heilbrigðislausna. Af hálfu landlæknis kom fram að umræddur samningur innihéldi mikilvægar upplýsingar um fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækis sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu. Nefndin taldi að þótt almenn vitneskja um kjör í viðskiptum fyrirtækja við hið opinbera gæti skaðað samkeppnisstöðu þeirra, og kynni jafnvel að skaða samkeppnisstöðu hins opinbera, hvort sem væri ríki eða sveitarfélög, yrði það sjónarmið að jafnaði að víkja fyrir almennum fyrirmælum laga um upplýsingarétt almennings. Þá taldi nefndin ekki hafa verið sýnt fram á að upplýsingar í samningnum væru til þess fallnar að valda samningsaðilum tjóni yrðu þær gerðar opinberar.…

03. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-496/2013. Úrskurður frá 23. september 2013

Kærð var synjun Siglingastofnunar á beiðni um afrit af útsendum yfirlitum með reikningum vegna vinnu tiltekinna starfsmanna. Úrskurðarnefnd féllst í fyrsta lagi ekki á það með Siglingastofnun að synja bæri beiðninni vegna skorts á skýrleika. Þá féllst nefndin í öðru lagi ekki á það með stofnuninni að synja bæri um aðgang vegna þess að í gögnunum væru slíkar upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila að aðgangur að þeim gæti verið til þess fallinn að valda þeim tjóni. Í þriðja lagi var ekki fallist á að synja mætti vegna álags á stofnunina sem hlytist af verkefnaflutningi til Samgöngustofu. Því var úrskurðað að veita bæri umbeðinn aðgang.

• First
• Prev
• 65
• 66
• 67
• 68
• 69
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband