Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 3351–3400 af 4327
Raða eftir:
02. okt. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra á 143. löggjafarþingi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu sína á 143. löggjafarþingi 2. október 2013.

30. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á aðalfundi Eyþings

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti ávarp á aðalfundi Eyþings, samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra sem fram fór á Grenivík á föstudaginn 27. september sl.

23. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-495/2013. Úrskurður frá 23. september 2013

A kærði drátt á svörum ríkislögmanns við ósk hennar um aðgang að fyrirliggjandi gögnum varðandi tiltekin samskipti hans og velferðarráðuneytisins, tengdum máli hennar á hendur ráðuneytinu. Eftir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók kæruna til meðferðar var beiðnin afgreidd. Með vísan til þess lá ekki fyrir synjun stjórnvalds á afhendingu gagna í skilningi upplýsingalaga, sem heyrði undir nefndina að fjalla um. Varð því að vísa kærunni frá nefndinni.

19. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á fjárfestingaráðstefnu í Lundúnum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti ávarp á fjárfestingaráðstefnu á Waldorf Hilton Hotel í Lundúnum, 19. september 2014. Í ræðu sinni útlistaði forsætisráðherra helstu áhersluþætti í efnahags- og fjárfestingastefnu ríkisstjórnarinnar, meðal annars er snúa að umhverfi efnahags- og fjármála á Íslandi og auknum möguleikum til fjárfestinga.

13. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Erindi á aðalfundi sambands sveitarfélaga á Austurlandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti erindi á aðalfundi sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem haldið var á Eskifirði, 13. september 2013.

11. sep. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðir forsætisráðuneytisins, Úrskurðir

Úrskurður forsætisráðuneytisins nr. 2 í máli nr. 1/2013

Kæra Must Visit Iceland ehf vegna ákvörðunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-492/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var sú ákvörðun Byggðastofnunar að synja M um afhendingu ráðningarsamninga við tilgreinda starfsmenn stofnunarinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að það með Byggðastofnun að tiltekin ákvæði upplýsingalaga, um starfsmannamálefni undanþegin upplýsingarétti girtu fyrir að M fengi umbeðinn aðgang. Hún kvað þann rétt, sem upplýsingalögin veita borgurunum til aðgangs að upplýsingum um föst launakjör opinberra starfsmanna, ekki eiga að víkja fyrir slíkum viðskipta- og samkeppnishagsmunum sem Byggðastofnun vísaði til. Þá gæti stjórnvald ekki, án sérstakrar lagaheimildar, lofað þeim sem það gerði ráðningarsamninga við, að aðrir fengju ekki afrit af þeim samningum. Byggðastofnun bæri því að veita aðgang að umræddum ráðningarsamningum.…

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-491/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum er tengjast Kaupþingi banka hf. Kærandi krafðist aðgangs að gögnunum. Beiðninni var að hluta til vísað til Fjármálaeftirlitsins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu en beiðni um aðgang að öðrum gögnum sem Fjármálaeftirlitið afhenti Rannsóknaranefnd Alþings og varða Kaupþing banka, þ.e. níunda og síðasta lið beiðni, var vísað frá nefndinni.

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-494/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var afgreiðsla sérstaks saksóknara á beiðni um afrit af tölvupóstsamskiptum hans og fréttamanns. Við meðferð málsins sagði sérstakur saksóknari að gögnunum hefði að öllum líkindum verið eytt og öryggisafrit væru ekki til.

Í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál segir að þótt ýmsum lagaákvæðum sé ætlað að tryggja að stjórnvöld skrái og varðveiti þær upplýsingar sem þau sýsla með komi eftirlit með þeim ákvæðum í hlut annarra aðila. Hlutverk hennar sé að úrskurða um ágreining vegna synjunar stjórnvalda um aðgang að gögnum. Þar sem umrædd gögn voru ekki til hjá sérstökum saksóknara varð ekki hjá því komist að vísa málinu frá nefndinni.

16. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-493/2013. Úrskurður frá 16. ágúst 2013

Kærð var ákvörðun landlæknis um aðgang að gögnum um úttekt á lyfjagagnagrunni. Landlæknir hafði orðið við beiðni varðandi gögn á málaskrá en m.a. synjað um aðgang að tölvupóstum sem væru vinnugögn. Í úrskurði segir að stjórnvald geti ekki synjað um aðgang að gagni því það sjálft telji það vera vinnugagn. Heldur ekki vegna þess að gagn hafi ekki verið fært í málaskrá, það ekki verið merkt þar sem vinnugagn eða  verið ranglega flokkað. Þá taldi nefndin oft ekki vera ljóst, að því er tölvupóstana varðaði, hvort um væri að ræða innanhússamskipti eða samskipti eins eða fleiri stjórnvalda. Þá innihéldu nokkrir þeirra mögulega upplýsingar um einkamálefni einstaklinga, sumir virtust hafa að geyma hluta af lyfjagagnagrunni og sumir hafa að geyma fundargerðir eða drög þeim.…

12. ágú. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra ræðir stöðu Norðurlandanna í Evrópu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt í dag erindi og tók þátt í umræðum um stöðu Norðurlandanna í Evrópu í Arendal, Noregi. Var viðburðurinn liður í dagskrá Arendalsvikunnar, sem er vettvangur stjórnmála- og atvinnulífs í Noregi til umræðu og skoðanaskipta.

25. júl. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðir forsætisráðuneytisins, Úrskurðir

Úrskurður forsætisráðuneytisins nr. 1 í máli nr. 1/2013

Kæra Must Visit Iceland ehf vegna ákvörðunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar

04. júl. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-490/2013. Úrskurður frá 3. júlí 2013

Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um aðgang að gögnum stjórnsýslunefndar, sem hafði með höndum samninga um endurmat á lánasöfnum bankanna nýju við erlenda kröfuhafa. Í öðru lagi var kærð sú ákvörðun ráðuneytisins að halda eftir ákveðnum hlutum tveggja samninga. Í þriðja lagi var þess óskað að úrskurðarnefndin endurmæti úrskurð sinn nr. A-436/2012. Með úrskurði A-490/2013 var staðfest synjun ráðuneytisins á beiðni um aðgang að tilteknum hlutum umræddra samninga og hafnað beiðni um endurupptöku  umrædds úrskurðar. Nefndin taldi hins vegar þörf frekari upplýsinga frá ráðuneytinu til að geta tekið afstöðu til synjunar um aðgang að gögnum umræddrar stjórnsýslunefndar. Er þeim þætti málsins því ólokið.

03. júl. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-489/2013. Úrskurður frá 3. júlí 2013

Kærð var ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að synja um aðgang að samantekt sem unnin var fyrir hann um skipulag lögreglu við mótmælin 2008 til 2011. Með úrskurði nr. A-489/2013 var því hafnað að þessi samantekt væri undirbúningsgagn og vinnuskjal í skilningi upplýsingalaga. Hins vegar var talið að samantektin hefði að geyma persónuupplýsingar sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt. Því hafi verið rétt að synja kæranda um aðgang að skjalinu í heild sinni. Kærandi ætti þó rétt á aðgangi að hlutum þess - þ.e. upplýsingum um sjálfan sig og þeim hlutum sem hefðu að geyma orðréttar tilvitnanir í fjölmiðla.

25. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-488/2013. Úrskurður frá 25. júní 2013

Kærð var afgreiðsla velferðarráðuneytis á beiðnum kæranda um aðgang að fyrirliggjandi gögnum um samskipti velferðarráðuneytisins og embættis ríkislögmanns vegna máls hennar á hendur velferðarráðuneytinu. Erindunum hafði ekki verið svarað. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-488/2013 þess efnis að þau gögn sem kærandi óskaði eftir og væru fyrirliggjandi hafi þegar verið afhent því lægi ekki fyrir synjun stjórnvalds um afhendingu gagna. Kærunni var því vísað frá.

25. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-474/2013. Úrskurður frá 25. júní 2013

Úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 31. janúar 2013 nr. A-474/2013 felldur úr gildi. Ekki efni til að taka afstöðu til kröfu um að frestað yrði réttaráhrifum úrskurðarins.

17. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, á Austurvelli 17. júní 2013

„Á þessum tímamótum stöndum við frammi fyrir bæði ógnum og óþrjótandi tækifærum. Óhjákvæmilegt er að ytri skilyrði, efnahagsástand og alþjóðaumhverfi hafi áhrif á afkomu okkar. Við búum við einstakar auðlindir og legu landsins sem mikil tækifæri felast í. En dýrmætastur er þó mannauðurinn, sem býr meðal þjóðarinnar sjálfrar.“

10. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra við upphaf 142. löggjafarþings

Stefnuræða forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, við upphaf 142. löggjafarþings, 10. júní 2013.

06. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-487/2013. Úrskurður frá 6. júní 2013

Kærð var ákvörðun Þjóðskjalasafn Íslands um að synja um aðgang að skýrslum nokkurra nafngreindra einstaklinga í skjalasafni rannsóknarnefndar Alþingis. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-487/2013 þar sem farið var yfir efni hverrar skýrslu og lagagrundvöll synjunar í hverju tilviki. Synjunin var staðfest.

06. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-486/2013. Úrskurður frá 6. júní 2013

Kærð var ákvörðun Landsnets hf. um að synja um afhendingu gagna í tengslum við kostnaðaráætlun Landsnets hf. frá 2008 fyrir 200kV jarðstreng frá Blöndustöð til Akureyrar. Umræddar upplýsingar og gögn eru upplýsingar um umhverfismál er varða opinbert hlutverk Landsnets hf. í skilningi 2. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 23/2006 um upplýsingarétt um umhverfismál. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-486/2013 þess efnis að kærði hafi eðli máls samkvæmt ekki synjað kæranda um aðgang að kostnaðaráætlun sem ekki finnst. Kærunni var því vísað frá að þessu leyti. Upplýsingar úr verðbanka Landsnets hf. voru ekki fyrirliggjandi og ekki var talið að skylt væri að vinna sérstakar upplýsingar fyrir kæranda úr verðbankanum. Synjun Landsnets hf. var því staðfest. Ekki var fjallað um það skjal sem Landsnet hf.…

06. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-485/2013. Úrskurður frá 6. júní 2013

Hagsmunasamtök heimilanna kærðu afgreiðslu velferðarráðuneytisins á beiðni um aðgang að reglugerð um störf kærunefndar greiðsluaðlögunarmála. Samtökin gerðu ekki athugasemd við efnislega afgreiðslu ráðuneytisins en óskuðu samt sem áður eftir því að úrskurðað yrði um þá hlið málsins sem snúi að töfum á afgreiðslu fyrirspurnarinnar. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um aðgang að gögnum eða dráttur á svörum sem kæranlegur er skv. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 var málinu vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

06. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-484/2013. Úrskurður frá 6. júní 2013

Hagsmunasamtök heimilanna kærðu afgreiðslu velferðarráðuneytisins á beiðni um aðgang að reglugerð um greiðsluaðlögun einstaklinga. Samtökin gerðu ekki athugasemd við efnislega afgreiðslu ráðuneytisins en óskuðu samt sem áður eftir því að úrskurðað yrði um þá hlið málsins sem snúi að töfum á afgreiðslu fyrirspurnarinnar. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um aðgang að gögnum eða dráttur á svörum sem kæranlegur er skv. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 var málinu vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

06. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-483/2013. Úrskurður frá 6. júní 2013

Kærð var afgreiðsla mennta- og menningarmálaráðuneytis á beiðnum kæranda um afrit af þjónustusamningi við Verzlunarskóla Íslands og Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. Erindunum hafði ekki verið svarað. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-483/2013 þess efnis að þau gögn sem kærandi óskaði eftir væru að hluta til ekki fyrirliggjandi hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og þau sem væru fyrirliggjandi hafi þegar verið afhent eða verið vísað til þess að þau séu kæranda aðgengileg, sbr. 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Því lægi ekki fyrir synjun stjórnvalds um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Kærunni var því vísað frá.

06. jún. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-482/2013. Úrskurður frá 6. júní 2013

Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins varðandi aðgang að gögnum vegna sölu á Síldarverksmiðjum ríkisins. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-482/2013 um að ekki lægi fyrir synjun stjórnvalds á beiðni um aðgang að gögnum í skilningi 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og því væru skilyrði fyrir kæru til nefndarinnar ekki uppfyllt. Fyrirvari ráðuneytisins um hugsanlega gjaldtöku á grundvelli 3. mgr. 18. gr. laganna fæli ekki í sér synjun á afhendingu gagna  og haggi hann því ekki framangreindri niðurstöðu. Kærunni var því vísað frá nefndinni.

31. maí 2013Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

Tillögur verkefnastjórnar samráðsvettvangs um aukna hagsæld

maí 2013 / Forsætisráðuneytið Tillögur verkefnastjórnar samráðsvettvangs um aukna hagsæld Á þriðja fundi Samráðsvettvangsins í maí 2013 kynnti verkefnisstjórn hagvaxtartillögur sínar og í kjölfarið voru þær ræddar. Tillögurnar snúa að öllum geirum hagkerfisins: opinbera geiranum, innlendri þjónustu, auðlindageiranum og alþjóðageiranum

30. maí 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla um stjórnsýslu fornleifarannsókna og fornleifaverndar á Íslandi 1990-2010

Skýrslan var gefin út af mennta- og menningarmálaráðuneyti í maí 2013, þ.e. áður en málaflokkurinn fluttist til forsætisráðuneytis.

23. maí 2013Ríkisstjórn, Forsætisráðuneytið, Annað

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar 2013

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.

23. maí 2013Ríkisstjórn, Forsætisráðuneytið, Annað

Ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar: 23. maí 2013 - 7. apríl 2016.

23. maí 2013Ríkisstjórn, Forsætisráðuneytið, Annað

Ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar: 23. maí 2013 - 7. apríl 2016.

13. maí 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-481/2013. Úrskurður frá 3. maí 2013

Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) kærðu þá ákvörðun tollstjóra að hafna beiðni um aðgang að gögnum um þá aðila sem nýttu sér  tollkvóta á landbúnaðarafurðum. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-481/2013 þess efnis að þagnarskylduákvæði 188. gr. tollalaga nr. 88/2005 væri sérstakt ákvæði um þagnarskyldu, í skilningi 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Upplýsingar um hvort fyrirtæki hafi nýtt sér úthlutaðan WTO tollkvóta féllu þar með undir sérstakt þagnarskylduákvæði og því yrði réttur til aðgangs að þeim hjá tollstjóra ekki byggður á ákvæði 3. gr. upplýsingalaga.

10. maí 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-480/2013. Úrskurður frá 3. maí 2013

Ótilgreind erlend tryggingarfélög kærðu synjun Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang a) að öllum gögnum rannsóknarnefndar Alþingis varðandi Kaupþing banka og b) að tilgreindum gögnum tengdum Kaupþingi banka. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-480/2013 um að beiðni um aðgang að öllum gögnum um þennan banka hafi ekki tengst tilteknu máli, þ.e. í skilningi upplýsingalaga. Málefni bankans kæmu við sögu í fjölmörgum köflum skýrslu rannsóknarnefndarinnar og þeim væri ekki haldið til haga sem sérstöku máli. Auk þess væri ekki hægt að finna viss gögn sem beðið var um. Framangreindu var vísað frá safninu. Að öðru leyti var heimvísað og safninu gert að afgreiða efnislega beiðni um aðgang að tilgreindum gögnum, eða eftir atvikum takmarka hann vegna þagnarskyldu.

08. maí 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-479/2013. Úrskurður frá 3. maí 2013

Tryggingamiðstöðin hf. kærði synjun Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 5. júlí, á beiðni félagsins. Sú beiðni laut í fyrsta lagi að öllum gögnum er varða málið: „Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis“. Í öðru lagi laut hún að aðgangi að tilteknum gögnum, í 23 nánar tilgreindum töluliðum, frá nefndinni. Í þriðja lagi laut hún að aðgangi að gögnum nefndarinnar, tengdum einstökum gerningum og/eða samningum, sem voru talin upp í 46 nánar tilgreindum töluliðum. Í fjórða lagi laut hún að aðgangi gögnum nefndarinnar í 29 sérstaklega tilgreindum töluliðum. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-479/2013 um að staðfesta þá ákvörðun Þjóðskjalasafnsins að synja um aðgang að öllum gögnum sem rannsóknarnefnd Alþingis nýtti við gerð skýrslu sinnar.…

30. apr. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ísland 2020: Ný stöðuskýrsla

Gefin hefur verið út ný skýrsla um Stefnumörkunina Ísland 2020, sem fjallar um framtíðarsýn um öflugra atvinnulíf og samfélag. Slík skýrsla var síðast gefin út í apríl 2012 þar sem stöðu verkefnanna í Ísland 2020 var lýst.

26. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Það skiptir máli hverjir stjórna

„Munum að með stefnu sinni og aðgerðum, t.d. einkavæðingu bankanna, kölluðu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn skelfilegar afleiðingar hrunsins yfir íslensk heimili. Það voru líka þessir flokkar sem ollu hér meiri ójöfnuði en áður hafði sést,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur í Fréttablaðinu 26. apríl 2013.

24. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-478/2013, Úrskurður 12. apríl 2013

Akureyrarbær krafðist þess að réttaráhrifum úrskurðar nr. A-472/2013, sem kveðinn var upp 31. janúar 2013, yrði frestað vegna þess að nafn kæranda hafi verið rangt tilgreint. Nefndin taldi að af hálfu Akureyrarbæjar hefði ekkert komið fram um að uppfyllt væru framangreind skilyrði svo fyrir hendi væri sérstök ástæða, í skilningi 24. gr. laga nr. 140/2012, til að ákveða að fresta réttaráhrifum úrskurðarins. Kröfunni var því hafnað, en samhliða gefið út nýtt leiðrétt staðfest endurrit úrskurðar A-472/2013.

24. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-477/2013. Úrskurður frá 12. apríl 2013

Kærð var synjun Barnaverndar Reykjavíkur á beiðni um aðgang að öllum gögnum er varða mál ólögráða dóttur kæranda. Úrskurðarnefndin leit til þess að Barnavernd Reykjavíkur starfar á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í 38. gr. þeirra kemur fram að um könnun barnaverndarmáls og málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd gilda stjórnsýslulög. Þar sem  upplýsingalög gilda ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum var talið að ágreiningur um rétt kæranda yrði ekki borinn undir nefndina, sbr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Var málinu vísað frá.

24. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-476/2013. Úrskurður frá 12. apríl 2013

Kærð var synjun embættis ríkisskattstjóra  um a) heildrænar, ópersónugreinanlegar upplýsingar um upphæðir og tilhögun greiðslu lögbundins tekjuskatts af eftirgjöf skulda og niðurfellingu persónulegra ábyrgða og b) um verklagsreglur og eftirfylgni embættis ríkisskattstjóra með áðurgreindu. Um fyrra atriðið vísaði úrskurðarnefndin til 14. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, um að kæra megi synjun stjórnvalds um að veita aðgang að fyrirliggjandi gögnum. Þau gögn sem kærandi hafði óskað eftir lágu ekki fyrir hjá ríkisskattstjóra og þessum þætti var vísað frá. Um seinna atriði var vísað til 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1996, um skyldu stjórnvalda til að veita almenningi aðgang að gögnum sem varða tiltekið mál.…

24. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-475//2013. Úrskurður frá 12. apríl 2013

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að gögnum í 26 töluliðum. FME hafði talið beiðnina vera of almenna og hafði synjað af þeirri ástæðu.  Úrskurðarnefndin benti á að ef beiðni væri sett fram í mörgum liðum bæri stjórnvaldi að afgreiða hvern lið fyrir sig. Fjármálaeftirlitið hafði ekki skoðað gert það heldur vísað beiðninni frá í heild sinni. Nefndin féllst á að hluti af þessum 26 töluliðum hafi verið of almennur til þess að hægt hafi verið að taka hann til efnislegrar afgreiðslu án nánari afmörkunar en að öðru leyti var málinu vísað heim til nýrrar og lögmætrar efnislegrar afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins.

23. apr. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Aukin vernd neytenda á fjármálamarkaði

Nefnd, sem skipuð var af hálfu forsætisráðuneytisins í október 2012 hefur skilað skýrslu og tillögum um bætta neytendavernd á fjármálamarkaði.

18. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Sóknarfæri í samskiptum við Kína

„Á svipaðan hátt og unnið hefur verið að jafnréttismálunum verður á næstunni unnið að vinnuverndar- og vinnuréttarmálum samhliða fríverslunarsamningnum sem borinn verður undir Alþingi næsta haust. Taka má fram að samningurinn breytir engu um aðgang kínversks vinnuafls að íslenskum vinnumarkaði,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birt ist í Fréttablaðinu 18. apríl 2013.

06. apr. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Kynferðisbrot: Brugðist við neyðarástandi

„Frá áramótum hafa leitað helmingi fleiri börn í Barnahús en gera að jafnaði á jafnlöngu tímabili. Undanfarna þrjá mánuði hafa leitað um tvö börn daglega í Barnahús. Í fyrsta skipti í sögu Barnahúss þurfa börn að bíða eftir þjónustu Barnahúss. Því blasir við neyðarástand vegna kynferðisafbrota gegn börnum,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birtist í Fréttablaðinu 6. apríl 2013.

05. apr. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Aðgerðir sökum neyðarástands vegna kynferðisbrota gegn börnum

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja nú þegar 79 milljónum kr. til að fjármagna forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. Þá hefur ríkisstjórnin lagt til að 110 milljón kr. aukafjárveiting verði varið í kaup á nýju Barnahúsi en sú tillaga er háð samþykki Alþingis. Samanlagt er um að ræða 189 milljónir kr.

22. mar. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Kaflaskil í samskiptum ríkis og sveitarfélaga

„Hugmyndin að baki sóknaráætlunum landshlutanna er í rauninni einföld. Hún byggist á því að innan átta landshluta fái sveitarstjórnir og ýmis landshlutasamtök, sem fást við framfara- og hagsmunamál, þræðina í sínar hendur. Þau forgangsraði verkefnum á grundvelli sóknaráætlana og ákveði hvernig tilteknum fjárframlögum til landshlutans skuli skipt. Á hinum endanum er stjórnarráðið með sín átta ráðuneyti,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birt var í DV 22. mars 2013.

22. mar. 2013Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna

Forsætisráðherra hefur gefið Alþingi skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi í samræmi við 5. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Skýrsla þessi er önnur í röðinni, á jafn mörgum árum.

20. mar. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Fjárfestingar í fullum gangi

„Allt sem hér er nefnt snertir verkefni sem hafin eru eða eru í undirbúningi. Ríkisstjórnin hefur því ótrauð stuðlað að fjárfestingum og tekist að fjármagna þær með arði af eignum og auðlindum þjóðarinnar,“ sergir meðal annars í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 20. mars 2013.

12. mar. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Nú er nóg komið !

„Nú er nóg komið gæti allt eins verið þema dagsins vegna baráttunnar gegn kynbundnu launamisrétti. Um leið og ætla má að þolinmæði okkar flestra sé þrotin gagnvart því spyr ég mig hvers vegna ekki gangi hraðar að útrýma því,“ segir m.a.  í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birtist í Fréttablaðinu 8. mars 2013.

16. feb. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Jafnaðarstjórn í fjögur ár: Orðspor og traust endurheimt

„Nú hafa verið endurgreiddir 227 milljarðar króna af lánum frá AGS og Norðurlöndunum eða sem nemur 50–60 prósentum af upphaflegum lánum og fyrirliggjandi er ósk íslenskra stjórnvalda um lækkun vaxta á því sem eftir stendur. Allt er þetta gert til að draga úr vaxtakostnaði ríkissjóðs og efla traust á Íslandi,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í  Fréttablaðinu 16. febrúar 2013.

09. feb. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Jafnaðarstjórn í fjögur ár: Lýðræðið í öndvegi

„Í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur verið ráðist í umfangsmestu breytingar á Stjórnarráðinu í sögu lýðveldisins. Þessar breytingar voru meðal annars gerðar í kjölfar ábendinga í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Ráðuneytum hefur verið fækkað úr 12 í 8 og breytingar samfara fækkuninni eiga að skila faglegri og skilvirkari þjónustu,“ segir meðal annars í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birtist í Fréttablaðinu 9. febrúar 2013.

03. feb. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp ráðherra við athöfn í Hörpu til heiðurs Vilborgu Örnu Gissurardóttur suðurpólsfara

Ávarpið var flutt  sunnudaginn 3. febrúar 2013 í Hörpu.

02. feb. 2013Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Jafnaðarstjórn í fjögur ár: Úr skuldafjötrum

„Sumarið 2007 námu heildarskuldir heimila 108 prósentum af landsframleiðslu. Í sínum hæstu hæðum árið 2009 námu skuldir heimilanna 135 prósentum af landsframleiðslunni,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birtist í Fréttablaðinu í dag, 2. febrúar 2013.  Nú bregði hins vegar svo við að skuldastaða þeirra sé komin niður í 108 prósent á ný, eða sama hlutfall og 15 mánuðum fyrir bankahrunið. Lækkunin nemi yfir 300 milljörðum króna.“

• First
• Prev
• 66
• 67
• 68
• 69
• 70
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband