01. sep. 2025Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Nýr menningarráðherra flutti sitt fyrsta ávarp á Menningarhátíð RÚV
„Það er mér mikill heiður að fá að taka þátt í dagskránni hér í dag og vekja athygli á því frábæra listafólki sem auðgar menningarlíf þjóðarinnar. Listin nærir andann, fær okkur til að hlæja, gráta og heillast. Hún dýpkar skilning á okkur sjálfum og heiminum i kringum okkur. Hún ögrar, eykur samkennd og auðgar líf okkar, tungumál, lýðræði og samfélag.
Ég tók nýverið við nýju menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og ætla mér að standa vörð um listir og menningu á Íslandi á næstu mánuðum og árum,“ sagði Logi Már og óskaði bæði viðurkenningarhöfum innileg til hamingju og menningunni allri fyrir gefandi ár.