21. des. 2001Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
A-139/2001 Úrskurður frá 21. desember 2001
Kærð var meðferð utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum, sem fyrrverandi utanríkisráðherra hafði látið Ríkisendurskoðun í té vegna athugunar á embættisfærslu hans sem fjármálaráðherra. Gögn afhent Ríkisendurskoðun tilheyra skjalasafni þeirrar stofnunar, sem þau stafa frá. Beiðni ekki beint að réttu stjórnvaldi. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Synjun staðfest.