21. okt. 2025Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið
Flýta vinnu við undirbúning viðskiptasamnings milli Íslands og Grænlands
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var í dag í opinberri vinnuheimsókn í Nuuk í Grænlandi og fundaði með Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, ásamt því að heimsækja stofnanir, skóla og fyrirtæki í höfuðstað landsins. Í heimsókninni áréttuðu leiðtogarnir órofa samstöðu þessara tveggja vinaþjóða og nánu granna á Norðurslóðum og ræddu framgang samstarfs milli landanna á grunni samstarfsyfirlýsingar Íslands og Grænlands frá 2022.