Um sendiskrifstofu

Hlutverk og starfsemi sendiráðs Íslands í Washington D.C.

Meginhlutverk sendiráðs Íslands í Washington D.C. er að hlúa að og efla tvíhliða samstarf Íslands og Bandaríkjanna, og annarra umdæmisríkja sendiráðsins á sviði stjórnmála, varnar- og öryggismála, viðskipta, mennta- og menningarmála. Því hlutverki er einkum sinnt með eftirfarandi hætti:

  • Að gera grein fyrir stefnu íslenskra stjórnvalda í helstu málaflokkum í bandaríska stjórnkerfinu og þannig auka skilning á og stuðning við íslenska hagsmuni. Samhliða því að fylgjast með og gera grein fyrir stefnu bandarískra stjórnvalda í helstu málaflokkum, og leggja mat á aðgerðir Bandaríkjastjórnar með tilliti til mögulegra áhrifa á íslenska hagsmuni.
  • Að styðja við íslenskt atvinnulíf í viðskiptum við Bandaríkin, bæði með stuðningi við einstök fyrirtæki og atvinnugreinar, og með því að stuðla að gerð viðskiptasamninga á milli ríkjanna.
  • Að koma íslenskri menningu á framfæri í Bandaríkjunum og efla menntasamstarf Íslands og Bandaríkjanna.
  • Að aðstoða og standa vörð um réttindi íslenskra ríkisborgara í Bandaríkjunum og efla þjóðrækni meðal Íslendinga og afkomenda þeirra í Bandaríkjunum og umdæmisríkjum.
  • Sendiráðið er einnig tengiliður við og tekur þátt í starfi NATO Allied Command Transformation í Norfolk. Sendiráðið tekur þátt í samráði sendiráða í Washington D.C. um málefni Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Frekari upplýsingar um starfsemi sendiráðsins veitir starfsfólk þess í gegnum netfangið washington@mfa.is.

Sendiráð Íslands - Washington

Heimilisfang:

House of Sweden, 2900 K Street, N.W. #509,
Washington, D.C. 20007-1704

Sími: +1 (202) 265 6653

Netfang: washington@utn.is

Opnunartími: Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 - 16:00

Nafn Starfsheiti Netfang
Ann-Sofie Cox fulltrúi washington@mfa.is
Ásdís Hreinsdóttir yfirmaður ræðis- og áritunardeildar washington@mfa.is
Einar Hansen Tómasson sendiráðunautur washington@mfa.is
Gautur Sturluson varnarmálafulltrúi washington@mfa.is
Helga Hrönn Karlsdóttir sendiráðsritari washington@mfa.is
Kristín Aranka Þorsteinsdóttir þriðji sendiráðsritari washington@mfa.is
Pedro Cerdan aðstoðarmaður / assistant washington@mfa.is
Snæfríður Grímsdóttir varavarnarmálafulltrúi / sendiráðsritari washington@mfa.is
Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra washington@mfa.is
Sveinn H. Guðmarsson varamaður sendiherra washington@mfa.is

Sendiherra

Svanhildur Hólm Valsdóttir

Ferilskrá (á ensku)