Með vísan til ákvæða 31. gr. búvörulaga nr. 99/1993 skipar atvinnuvegaráðherra sex menn í Framkvæmdanefnd búvörusamninga. Ráðherra tilnefnir tvo fulltrúa og skal annar þeirra vera formaður. Ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins tilnefnir einn fulltrúa og Bændasamtök Íslands tilnefna þrjá fulltrúa. Varamenn eru skipaðir á sama hátt.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga er sjálfstæð í störfum sínum og setur sér starfsreglur. Framkvæmdanefnd búvörusamninga er samráðsvettvangur samningsaðila um framkvæmd samninga skv. 30. gr. búvörulaga. Nefndin er ráðherra til ráðgjafar við framkvæmd samninga skv. 30. gr. Hún tekur ákvarðanir um tilfærslur framlaga milli einstakra samningsliða og greiðslutilhögun framlaga. Ákvarðanir í nefndinni skulu teknar með einföldum meirihluta atkvæða. Séu ákvæði jöfn sker atkvæði formanns úr um niðurstöðu. Ákvarðanir Framkvæmdanefndar búvörusamninga eru endanlegar á stjórnsýslustigi. Fundargerðir og ákvarðanir nefndarinnar skal birta opinberlega.
Í nefndinni eiga sæti:
- Sigurður Eyþórsson, skipaður formaður án tilnefningar
Varamaður: Elísabet Anna Jónsdóttir, skipuð án tilnefningar - Rebekka Hilmarsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvegaróðuneytinu, skipuð án tilnefningar
Varamaður: Arnar Freyr Einarsson, sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneytinu, skipaður án tilnefningar - Hrefna Rós Matthíasdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Varamaður: Sólrún Halldóra Þrastardóttir, tilnefnd tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneytinu - Sigurbjörg Ottesen, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
Varamaður: Ásta Fönn Flosadóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands, - Axel Sæland, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
Varamaður: Óli Björn Finnsson