Utanríkisráðherra Japans á Íslandi

ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
23. október 2018
/
Sendiráð Íslands í Tókýó
{image.Description}
Taro Kono, utanríkisráðherra Japans og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra tók í forföllum utanríkisráðherra á móti Taro Kono, utanríkisráðherra Japans þegar hann kom til Íslands í opinbera heimsókn 18.-19. október. Taro Kono lýsti því yfir við það tækifæri að hann væri fyrstur utanríkisráðherra Japans til að heimsækja Ísland. Ræddu ráðherrarnir ánægjuleg pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti þjóðanna, þar á meðal á vettvangi Norðurskautsráðsins.