Kosning utan kjörfundar í Finnlandi og umdæmislöndum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið
24. júlí 2026
/
Sendiráð Íslands í Helsinki
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fer fram 29. ágúst nk. hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí.
Í sendiráðinu í Helsinki er hægt að greiða atkvæði á virkum dögum milli kl. 10:00 16:00 fram til 28. ágúst.
- Athugið að sendiráðið er lokað mánudaginn 3. ágúst.
Einnig er hægt að kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands í Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen eftir samkomulagi.
- Mikilvægt: hafa þar samband við kjörræðismenn fyrirfram.
- Nánari upplýsingar um opnunartíma hjá kjörræðismönnum Íslands í Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen er að finna á síðu utanríkisráðuneytisins.
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
Íslenskur ríkisborgari, sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár. Nánar um uppflettingu í kjörskrá og kosningarétt í athugasemdum.
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst.
Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Nánari upplýsingar:
- Sjá vefsíðu landskjörstjórnar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
- Sjá upplýsingavef utanríkisráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
- Upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum og borgum.