ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
13 mars 2002
/
Innviðaráðuneytið

Nýr formaður Ferðamálaráðs Íslands skipaður

Samgönguráðherra hefur skipað Einar Kr. Guðfinnsson alþingismann, formann Ferðamálaráðs Íslands.

Einar kemur í stað Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra, sem áður gengdi starfinu. Einar Kr. Guðfinnsson var einnig skipaður fulltrúi samgönguráðherra í Vestnorrænu ferðamálanefndinni.