ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
02 september 2005
/
Forsætisráðuneytið
Samúðarskeyti til forsætisráðherra Íraks vegna harmleiksins í Bagdad
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í dag, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Ibrahim al-Ja´afari forsætisráðherra Íraks, samúðarskeyti vegna harmleiksins fyrr í vikunni, þegar tæplega 1.000 Írakar létu lífið í Kazamiyah hverfinu í Bagdad.
Í Reykjavík, 02. september 2005