ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
02 maí 2007
/
Utanríkisráðuneytið
Fundur utanríkisráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 058
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Dusan Caplovic aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu í Kröfluvirkjun í Mývatnssveit.
Ráðherrarnir ræddu meðal annars möguleika á aukinni samvinnu á sviði orkumála og samstarf í menntamálum á háskólastigi.