ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
31 ágúst 2010
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Engin ósk um viðræður

Undanfarna daga hefur ítrekað verið haft eftir embættismönnum framkvæmdastjórnar ESB að um miðjan september muni fara fram tvíhliða viðræður milli Evrópusambandsins og Íslands um makríl. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vill af þessu tilefni taka það fram að engin ósk um slíkar viðræður hefur borist íslenskum stjórnvöldum.