ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
28 apríl 2014
/
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fundar með norrænum starfsbræðrum í Reykholti

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna munu funda í Reykholti, dagana 29. og 30. apríl, í boði Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra. Á dagskrá fundarins verða m.a. norræn samvinna og samrekstur, öryggismál, norðurslóðamál, ástandið í Úkraínu og undirbúningur fyrir fund Atlantshafsbandalagsins í september.