01 október 2026
/
Forsætisráðuneytið

Ræða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins – 1. október 2026

Ársfundur Samtaka atvinnulífsins – atvinnurekendur og góðir gestir.

Ég lærði snemma í stjórnmálum – fyrst sem þingmaður í stjórnarandstöðu og svo formaður með frekar lítinn þingflokk á þeim tíma – að sá sem nær mestum árangri er ekki sá sem hrópar hæst, eða notar stærstu orðin í umræðunni. Alls ekki. Það er ekki endilega sá sem teiknar svörtustu myndina, ber sig verst eða ýkir mest sem nær í gegn í sínum málflutningi.

Þvert á móti er mín reynsla sú að það sé betra að einbeita sér að því að sjá stóru myndina. Ekki með of flokkspólitískum gleraugum, því að það getur ruglað dómgreindina – heldur reyna frekar að skilja mismunandi sjónarmið. Setja Ísland fyrst – ekki flokkinn sinn. Og láta verkin tala.

Þið skiljið þetta. Forstjóri eða fjárfestir sem missir sjónar á stóru myndinni getur farið á mis við arðbæra fjárfestingu, hagræðingu eða tækifæri til að sækja fram.

* * *

Í ávarpi mínu hér í fyrra þá höfðaði ég til ykkar um að sjá og nýta tækifærin með nýrri ríkisstjórn – til að vinna saman, láta verkin tala og styrkja Ísland.

Því þó að við verðum ekki öll sammála um allt þá getum við sameinast um þetta: Við eigum eitthvað algjörlega sérstakt saman hérna á Íslandi – sem vekur stolt og bindur okkur saman sem þjóð – sem við viljum vernda og varðveita áfram. Og þar hefur hvert og eitt okkar mikilvægu hlutverki að gegna.

Í dag mun ég fara stuttlega yfir stöðuna:

  • Hver er stóra myndin?
  • Hver er stefnan og hvað segja verkin?
  • Og hvernig sækjum við fram saman – fyrir Ísland?

Byrjum á stóru myndinni:

Fjárfesting atvinnuvega hefur ekki verið meiri á Íslandi í 50 ár – nema árin þrjú fyrir efnahagshrunið; þegar skuldasöfnun fyrirtækja keyrði um þverbak og framkvæmdir á Kárahnjúkum stóðu sem hæst.

Núna fjárfestum við tvisvar sinnum meira sem hlutfall af hagkerfinu en árunum eftir hrun.

Og almenn atvinnuvegafjárfesting í landinu er að aukast um rúmlega 6% á þessu ári – svo að það er ekkert sem bendir til að þessi mikla fjárfesting sé að minnka.

Þannig að hvað sem menn segja – hvað sem líður stórum orðum í umræðunni og fullyrðingum sem er fleygt – þá er allavega ljóst að atvinnulífið sjálft lætur verkin tala.

Og verkin sýna merkin – betur en umræðan – um raunverulega trú manna, fjárfesta og fyrirtækja á framtíð atvinnulífs hér á Íslandi.

Þetta hlýtur að vekja mönnum von og bjartsýni fyrir land og þjóð.

Og þetta er staðan – þrátt fyrir að vextir séu eins háir og raun ber vitni og þrátt fyrir að verðbólga standi í tæplega 6% sem er vissulega of mikið. En ef við skoðum samhengið og sjáum stóru myndina þá er staðreyndin sú að meðalverðbólga frá aldamótum er um 5%.

Já, við getum betur. Já, hallalaus fjárlög eru nauðsynleg núllstilling til að ríkið hætti að kynda undir þenslunni. Og já:

Við erum loksins að snúa við blaðinu í baráttunni við verðbólguna – með samstilltu átaki.

Því að við erum að laga ríkisfjármálin og kæla kerfið.

Það hefur tekist að hemja undirliggjandi verðbólgu.

Við vitum öll hvaða afleiðingar hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur haft. En ég mun á morgun – eftir uppbyggilegt og gott þríhliða samtal við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins – fara fyrir ríkisstjórn með aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu þessara aðila, ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem miðar að því að verja kjarasamninga. Með því að ná niður verðbólgu og skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta. Þetta er gert með afmörkuðum aðgerðum – án þess að auka kostnað fyrirtækja eða ógna markmiði um hallalaus fjárlög.

Í því samhengi má þakka fyrir þétt samstarf síðustu mánuði og sömuleiðis fyrir það frumkvæði sem sum af fyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins hafa sýnt á liðnum dögum – til að leggja sitt af mörkum í þessum efnum með því að halda aftur af verðhækkunum.

Þá fagna ég ályktun frá landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um vilja til að halda hækkunum á gjaldskrám innan við 2,5% á árinu 2027.

Og að sjálfsögðu er ríkisstjórnin reiðubúin að gera slíkt hið sama ef allir gera sitt og samningar halda – með því að takmarka hækkanir á almennum krónutölugjöldum og á gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5% og með tilmælum til fyrirtækja í eigu ríkisins. Þetta hefur áður komið fram og var reyndar líka á borðinu strax í sumar í þríhliða samtalinu – en þá náðist ekki saman um aðgerðir í þessa veru.

Ég viðurkenni að ég bjóst við meiri áhuga í sumar frá þeim sem hér sitja á að kanna kosti þess að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og taka upp stöðugri gjaldmiðil – sem hefði getað orðið akkeri fyrir vinnumarkaðinn og efnahagslífið. Líkt og sú fastgengisstefna sem ríkið lagði á borðið fyrir gerð þjóðarsáttarsamninganna frægu árið 1990. En þjóðin sagði sitt og við vinnum að sjálfsögðu með þá niðurstöðu.

Nú horfir til betri vegar og ég bind vonir við að allir aðilar vinnumarkaðar muni axla sína ábyrgð.

Ég veit að fjármál ríkisins eru mörgum hér ofarlega huga. Og í umræðunni fer oft mikið fyrir stökum sköttum eða útgjaldaliðum – sem er haldið á lofti og sagðir til marks um sístækkandi ríkisbákn.

En hver er stóra myndin í raun og veru þegar kemur að fjármálum ríkisins?

Ríkisútgjöld fara niður í 30% af landsframleiðslu á næsta ári – sem er það minnsta á þessum áratug.

Þetta gerum við með mesta aðhaldi í útgjöldum í 15 ár. Við byrjuðum á sjálfum okkur og hagræðingin er þegar farin að virka. Þetta sést meðal annars á því að ríkisstörfum er hætt að fjölga – eftir hraða aukningu síðustu ára. Sem dæmi fjölgaði ríkisstörfum hér á höfuðborgarsvæðinu um 15 á árinu 2025 samanborið við fjölgun upp á 500 störf árið á undan.

Við höfum fækkað ríkisstofnunum um 8% á aðeins 2 árum í ríkisstjórn – og stefnum að 15% fækkun áður en kjörtímabilið klárast.

Tekjur ríkisins eru um 30% af landsframleiðslu sem er svipað og síðustu ár fyrir utan faraldursárin. Og þar eru bæði skattar og gjöld meðtalin – sem munu á næsta ári loksins standa undir útgjöldum ríkisins, með hallalausum fjárlögum, í fyrsta skipti í að verða áratug. Sem ætti að vera okkur öllum mikið fagnaðarefni.

Þetta segi ég ekki til að gera lítið úr áhrifum skatta og gjalda á rekstrarumhverfi einstakra fyrirtækja. En ég held að þið skiljið alveg hvað við erum að gera og hvers vegna. Og ég geri kröfu um að fólk sem ræðir stöðu ríkisfjármála geri það út frá staðreyndum og stóru myndinni – en ekki út frá eigin tilfinningum eða harðri hugmyndafræðilegri línu.

Já, góðir gestir – Ísland er frábært land og menn verða að horfa á stóru myndina.

Við megum ekki bogna út af tímabundnu bakslagi í baráttunni við verðbólgu – sem við vitum vel að orsakast af ytri verðbólgu, að þessu sinni, ættaðri utan úr heimi.

Spyrjum frekar núna: Hvert stefnum við og hvað segja verkin?

Lítum á sumt af því sem áunnist hefur síðan þið komuð síðast saman á ársfundi:

Fyrsta atvinnustefna Íslands – samþykkt formlega af ríkisstjórn. Til að brjótast út úr tímabili 0% hagvaxtar á mann frá árinu 2018.

Með afgerandi áherslum og aðgerðaáætlun um að einfalda regluverk, auka orkuöflun, efla iðnnám, styrkja STEM-greinar og vinna aftur skipulega að stórum kjölfestuverkefnum á landsbyggðinni.

Núna erum við að framkvæma þessa stefnu – þvert á stjórnkerfið og þétt með atvinnulífinu.

Við höfum einfaldað regluverk.

Við höfum ráðist í mestu uppstokkun á eftirlitsumhverfi fyrirtækja í áratugi – meðal annars með því að leggja niður heilbrigðiseftirlitin, létta á jafnlaunavottun og afnema auglýsingaskyldu hjá yfir 100 flokkum atvinnustarfsemi.

Við erum ekki hætt og undirbúum nú átak í samráði við aðila vinnumarkaðar um frekari einföldun og ætlum líka að koma samtali um einföldun í formfastan og varanlegan farveg.

Við höfum aukið orkuöflun.

Og við erum reyndar á góðri leið með að snúa algjörlega við allri lagaumgjörð orkumála á Íslandi – undir styrkri stjórn okkar sjálfskipaða hagvaxtarráðherra.

Við kláruðum samgönguáætlun í fyrsta skipti á þessum áratug – með stórauknu viðhaldi vega. Og við stofnuðum loksins Göng og brú – nýtt innviðafélag til að flýta framkvæmdum við þjóðhagslega mikilvæga samgönguinnviði í landinu.

Við höfum sett af stað framkvæmdir við stækkun verknámsskóla um land allt – og nú er í forgangi að koma uppbyggingu á nýjum Tækniskóla í traustara ferli.

Við erum að styrkja háskólana og STEM-greinar á öllum skólastigum.

Og við munum áfram styðja með myndarlegum hætti við rannsóknir og þróun og hugverkaiðnaðinn á Íslandi – en nú er verkefnið að greiða úr flækjum í framkvæmdinni um leið og við gerum stuðninginn ennþá markvissari en verið hefur.

Allt þetta gerum við á sama tíma og við hættum að reka ríkið á yfirdrætti – förum með ríkisútgjöldin niður í 30% af landsframleiðslu, fækkum ríkisstofnunum og hættum að fjölga ríkisstörfum í bili að minnsta kosti.

Ekki vegna hugmyndafræði. Ekki til að slá pólitískar keilur. Ekki vegna þess að það er auðvelt.

Heldur til að ríkið hætti að kynda beinlínis undir þenslu í hagkerfinu. Til að byggja enn traustari grunn fyrir vöxt og verðmætasköpun framtíðar. Og til að styrkja Ísland.

Góðir gestir. Ég er ekki komin hingað til að segja ykkur að allt sé fullkomið eða að allt þetta sem gengur svo vel á Íslandi sé ríkisstjórninni að þakka. Bara alls ekki. Enda vinnst ekkert í stjórnmálum með stórum orðum heldur aðeins með stórum verkum. Ég er líka fullkomlega meðvituð um framlag minna forvera í fyrri ríkisstjórnum. En þó að við búum til rammann þá eru það þið og fólkið í landinu sem býr til verðmætin, velferðina og samfélagið sem við eigum hérna saman – þegar upp er staðið.

En svona er staðan. Þetta er stefnan. Og nú er spurningin þessi: Hvernig sækjum við fram saman?

Ég sé fullt af tækifærum – en ég er aðallega spennt að heyra hvort þið sjáið þau líka og mun hlusta eftir því hér á eftir.

Höldum áfram að fjárfesta af þessum mikla krafti á Íslandi – bæði í atvinnuvegunum og hjá hinu opinbera. Og förum saman út í heim til að sækja erlenda fjárfestingu fyrir íslenskt atvinnulíf.

Vinnum áfram með atvinnustefnuna. Einföldum regluverk. Og höggvum á fleiri hnúta í orkumálum.

Tökum áfram til í ríkisrekstrinum. Klárum hallalausu fjárlögin. Og snúum við blaðinu í baráttunni við verðbólguna – með samstilltu átaki.

* * *

Allt þetta skiptir máli og gefur okkur færi til frekari samvinnu á næstu árum.

En mikilvægast af öllu er að mínu mati að við sjáum stóru myndina – reynum að skilja mismunandi sjónarmið – setjum Ísland fyrst og látum verkin tala.

Leysum mál. Brjótum niður vantraust og byggjum upp traust. Og keyrum á samstöðu – sem færir fólkið í landinu nær hvert öðru en ekki fjær.

Þannig sækjum við fram saman fyrir Ísland.