16 júní 2017Skýrsla um endurskoðun á rekstri flugvallaVinnuhópur, sem Ólöf Nordal, þáverandi innanríkisráðherra, setti á laggirnar í ágúst 2016, og falið var að skoða hvort breytingar á rekstrarfyrirkomulagi innanlandsflugvalla gætu stuðlað að hagkvæmari og skilvirkari almenningssamgöngum lauk störfum í maí sl.…
16 júní 2017Auglýst eftir tveimur skrifstofustjórumDómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti skrifstofustjóra í ráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 3. júlí nk.
16 júní 2017Kafbátaeftirlitsæfing við Ísland 23. júní - 6. júlíNíu ríki Atlantshafsbandalagsins, Bandaríkin, Noregur, Frakkland, Þýskaland, Bretland, Danmörk, Kanada, Pólland og Holland. taka þátt í æfingunni.
16 júní 2017Ferðamálaráði falið að gera tillögur um viðbrögð við þremur áskorunum í ferðaþjónustuRáðherra ferðamála hefur óskað eftir því við ferðamálaráð að ráðið geri tillögur um aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að bregðast við þremur áskorunum sem ætla má að raski samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu.
16 júní 2017Landspítali og Verandi tilnefnd til Umhverfisverðlauna NorðurlandaráðsNorræn dómnefnd hefur valið 11 verkefni til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs úr hópi þeirra tillagna sem borist hafa frá almenningi á Norðurlöndum. Þemað í ár eru verkefni sem færa okkur nær úrgangslausu samfélagi.
16 júní 2017Vísinda- og tækniráð samþykkir stefnu og aðgerðaáætlun til þriggja áraStefnan miðar að því að auka afköst rannsókna- og nýsköpunarkerfisins með markvissri og vel grundaðri ákvarðanatöku og skilvirkri nýtingu fjármagns.
16 júní 2017Hervör L. Þorvaldsdóttir kjörin forseti LandsréttarNýskipaðir dómarar við Landsrétt komu saman til fyrsta fundar í gær. Á fundinum var Hervör L. Þorvaldsdóttir kjörin forseti Landsréttar og Davíð Þór Björgvinsson varaforseti réttarins.
16 júní 2017Endurskoðuð fráveitureglugerð send út til umsagnarNefnd um endurskoðun reglugerðar um fráveitur og skólp hefur skilað tillögum að breyttri reglugerð til ráðherra ásamt greinargerð. Nefndin leggur til ýmsar breytingar sem eru ætlaðar til að einfalda ákvæði reglugerðarinnar og gera hana skýrari.
16 júní 2017Breyting á byggingarreglugerð vegna orkuskipta í samgöngumUmhverfis- og auðlindaráðuneytið vinnur nú að því að sett verði í byggingarreglugerð bindandi ákvæði um að í nýbyggingum og við endurbyggingu húsnæðis skuli gert ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla.
16 júní 2017Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júníÞorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, afhendir styrki úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júní næstkomandi. Styrkveitingin fer fram við athöfn í Silfurbergi A í Hörpu kl. 9.00 – 11.00. Allir velkomnir.
16 júní 2017Tillaga að íslenskri krabbameinsáætlunSkýrsla ráðgjafarhóps með tillögu til heilbrigðisráðherra um íslenska krabbameinsáætlun til ársins 2020 var birt á vef Stjórnarráðsins 7. júlí sl. Verkefnisstjórn verður falið að móta framkvæmd og eftirfylgni hennar og gera tillögu um forgangsröðun verkefna á grundvelli fjárheimilda.
16 júní 2017Forsætisráðherra á hádegisverðarfund með forsætisráðherra SlóvakíuBjarni Benediktsson, forsætisráðherra, mun eiga hádegisverðarfund í dag í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu.
16 júní 2017Menningarsjóður Íslands og FinnlandsLokið er úthlutun framlaga og styrkja fyrir seinni hluta ársins 2017 og fyrri hluta ársins 2018.
16 júní 2017Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2017Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2017. Umsóknum ber að skila fyrir kl. 14.00 föstudaginn 14. júlí 2017.
16 júní 2017Ríkisstjórnin styður menningarkynningu í tengslum við EM kvennaRíkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra, að verja 6 millj. kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til menningarkynningar í tengslum við Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Hollandi dagana 16. júlí til 6. ágúst næstkomandi.
16 júní 2017682/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017
Kærð var afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast Landsbanka Íslands Úrskurðarnefndin taldi ýmis samskipti starfsmanna bankans og annarra lúta þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og taldi safnið bundið þagnarskyldunni samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins.…
16 júní 2017686/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017
Kæru vegna beiðni um upplýsingar um umsækjendur í starf við félagslega liðleiðslu fyrir börn og fullorðna hjá Vestmannaeyjabæ var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem Vestmannaeyjabær hafði gefið þær skýringar að enginn hafi sótt um starfið. Lá því ekki fyrir synjun á afhendingu gagna, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga.

16 júní 2017687/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017
Beiðni kæranda um afrit af skjölum í vörslum embættis landlæknis sem varði hana sjálfa og nefni hana á nafn var vísað til embættisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.…
16 júní 2017683/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017
Kærandi óskaði eftir gögnum í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands er varða Landsbanka Íslands. Úrskurðarnefnd tók fram að 1. mgr. 13. gr. nr. 87/1998 laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um Seðlabanka Íslands feli í sér sérstaka þagnarskyldu og takmarki þar af leiðandi aðgang almennings á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga.…
16 júní 2017684/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017
Kærð var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum varðandi ívilnunarsamning við Silicor Materials. Ráðuneytið hafði synjað um aðgang að gögnunum á þeim grundvelli að gögnin vörðuðu mikilvæga fjarhags- eða viðskiptahagsmuni Silicor Materials, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga.…
15 júní 2017Utanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsins funda í ReykjavíkMarkar lok formennsku Íslands í ráðinu 2016-2017.
15 júní 2017Heilbrigðisráðherra ávarpaði þing norrænna heimilislæknaÓttarr Proppé heilbrigðisráðherra ræddi um heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu og eflingu hennar til að sinna því hlutverki sem best á 20. þingi norrænna heimilislækna í Hörpu í gær. Þetta er stærsta læknaráðstefnan sem haldin hefur verið hér á landi.
15 júní 2017Eignarnám vegna Kröflulínu 4 staðfestHæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að eignarnám af hálfu Landsnets vegna Kröflulínu 4 hafi verið heimilt.
15 júní 2017Heilsueflandi samfélag í BláskógabyggðUm 74% landsmanna búa nú í sveitarfélögum sem taka þátt í verkefninu um heilsueflandi samfélag með samningi við Embætti landæknis. Heilbrigðisráðherra ræddi áherslur stjórnvalda varðandi lýðheilsu og heilsueflingu við undirritun samnings um þátttöku Bláskógabyggðar í verkefninu nýlega.
15 júní 2017Úrskurður í máli nr. SRN17040453Samgöngustofa: Staðfest ákvörðun SGS um að synja beiðni um heimild til að nota tilteknar bifreiðar við akstursþjónustu fatlaðs fólks og fatlaðra skólabarna
15 júní 2017Nr. 340/2017 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Noregs er staðfest.
15 júní 2017Úrskurður nr. 306/2017
Alþjóðleg vernd, barnafjölskylda, ákvörðun ÚTL staðfest

15 júní 2017Úrskurður nr. 124/2017
Endurupptaka, alþjóðleg vernd, barnafjölskylda, ákvörðun ÚTL felld úr gildi

14 júní 2017Fullgilding Íslands á bókun ILO um afnám nauðungarvinnuÞorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra afhenti í dag Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu.
14 júní 2017Starfsemi og safnkostur Tónlistarsafns Íslands flutt til Þjóðminjasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands - HáskólabókasafnsÍ fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Þjóðminjasafni Íslands er greint frá því að starfsemi Tónlistarsafns Íslands verði ekki haldið áfram í núverandi mynd
14 júní 2017Drög að breytingum á sveitarstjórnarlögum til umsagnarSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, er varðar fjölda borgarfulltrúa í Reykjavík. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi á síðasta þingi en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess þá. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið postur@srn.is til 14. júlí næstkomandi.
14 júní 2017Handbók um skólaráð – fyrir skólaráðGefin hefur verið út Handbók um skólaráð – fyrir skólaráð. Hún var gerð í samstarfi Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Sambands Ísl. sveitarfélaga með ráðgjöf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, umboðsmanni barna og SAMFOK.
14 júní 2017Ríkisreikningur 2016Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2016 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Helstu niðurstöður ríkisreiknings fyrir 2016 eru að tekjujöfnuður ársins var jákvæður um 294,6 ma.kr. samanborið við jákvæðan 20,0 ma.kr. tekjujöfnuð árið 2015.
14 júní 2017Fjölgun ferðamanna meiri en vöxtur í kortaveltuKortavelta erlendra ferðamanna í íslenskum krónum jókst um tæp 28% í apríl 2017 miðað við sama mánuð árið áður. Á sama tíma var fjölgun ferðamanna um 62% og var þetta fimmti mánuðurinn í röð sem vöxtur ferðamanna var meiri en vöxtur í kortaveltu þeirra, samkvæmt samantekt ráðuneytisins um þetta efni.
14 júní 2017Nýjar gerðir ESB vegna niðurfellingar reikigjalda innleiddarSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú innleitt nýjar gerðir Evrópusambandsins á sviði fjarskiptaþjónustu er lúta að því að fella niður reikigjöld innan Evrópska efnahagssvæðisins. Frá og með 15. júní 2017 falla reikigjöld niður innan EES. Í því felst að neytendur EES-ríkja munu greiða sama gjald fyrir farsímanotkun á ferðalögum innan EES og þeir greiða heima.
14 júní 2017Salernum fyrir ferðamenn komið upp á 15 stöðum hringinn í kringum landiðStjórnstöð ferðamála og Vegagerðin völdu staðina í sameiningu og byggðu þar m.a. á fyrri greiningum verkfræðistofunnar Eflu. Við val á staðsetningu var höfð hliðsjón af því að langt væri til næsta þjónustustaðar.
14 júní 2017Brýnt að draga úr fátækt og stríðsátökum í álfunni
Tvennt bar hæst í ávarpi Angelu Merker Þýskalandskanslara í sérstökum leiðtogafundi með þjóðhöfðingum Afríku á mánudaginn: annars vegar að draga úr fátækt og hins vegar að fækka átökum í álfunni. Þýskalandskanslari efndi til leiðtogafundarins með þjóðhöfðingjum Afríku í aðdraganda leiðtogafundar G20 ríkjahópsins í næsta mánuði þar sem Þjóðverjar eru í forsæti.

14 júní 2017Framlögum verður að mestu ráðstafað í þágu kvenna og stúlkna
Samkvæmt nýrri femínískri stefnu stjórnvalda í Kanada í þróunarmálum verða 95% af öllum opinberum framlögum ráðstafað í þágu kynjajafnréttis kvenna og stúlkna, árið 2022.

14 júní 2017Malavískur rappari á Secret Solstice hátíðinni
Malavíski hiphop listamaðurinn Tay Grin er einn af fjölmörgum tónlistar-mönnum sem koma fram á sumarsólstöðuhátíðinni Secret Solstice í Reykjavík síðar í vikunni en hátíðin hefst á morgun og stendur yfir helgina.

14 júní 2017Rödd Íslands sterk á hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York
"Íslendingar lögðu fram viljayfirlýsingu um að draga úr plastmengun í sjó með skipulögðu átaki, að auka þekkingu á afleiðingu súrnunar sjávar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum með fjölþættum aðgerðum sem muni meðal annars stuðla að minni losun frá samgöngum og sjávarútvegi," segir Jóhann Sigurjónsson sérstakur erindreki um málefni hafsins hjá utanríkisráðuneytinu sem sótti…
14 júní 2017Jafningjarýni DAC um Ísland kynnt samtímis á mánudag í París og ReykjavíkNæstkomandi mánudag, 19. júní, verða birtar á sama tíma í París og á Íslandi, niðurstöður fyrstu jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD-DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Rýnin nær yfir tímabilið 2013-2016 og felur í sér úttekt á helstu þáttum alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands, s.s. laga- og stofnanaumgjörð, stefnumótun og framkvæmd.
14 júní 2017Frumkvöðlakonur í sjálfbærri orku funda í Gabon - fjármögnun í brennidepli
Utanríkisráðuneytið, Jafnréttisskóli Háskóla SÞ (UNU-GEST) og Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Environment) skipulögðu vinnufund fyrir frumkvöðlakonur sem starfa við sjálfbæra orku í Afríku, sem haldinn er þessa dagana í Libreville í Gabon.

14 júní 2017Upplifun flóttamannsinsÁ dögunum var leikurinn "Upplifun flóttamannsins" prófaður með nemendum níunda bekkjar Salaskóla í Kópavogi. Markmið leiksins er að auka þekkingu ungs fólks á aðstæðum flóttafólks.…
14 júní 2017Norræni dagurinn í Kampala
Áttunda árið í röð fögnuðu Norðurlandaþjóðirnar sameiginlega þjóðhátíðardegi í Kampala á dögunum. Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Ísland eiga öll þjóðhátíðardaga í maí og júní og hafa því tekið þann kostinn að láta af sér vita og gleðjast með vinum í Úganda á sameiginlegri hátíð.

14 júní 2017Dagur rauða nefsins: Hátt í tvö þúsund nýir HeimsforeldrarDagur rauða nefsins hjá UNICEF á Íslandi náði hámarki síðastliðið föstudagskvöld í rúmlega þriggja klukkustunda skemmti- og söfnunarþætti í beinni útsendingu á RÚV. Meginmarkmið átaksins var að gleðja landsmenn, fræða þá um baráttu UNICEF í þágu barna um allan heim og bjóða þeim að gerast heimsforeldrar .
14 júní 2017Ministry of Finance and Economic AffairsGovernment Accounts 2016
The results of Government Accounts for 2016 have now been published and the accounts forwarded to the Althingi. The principal outcome of the 2016 Government Accounts is a revenue surplus of ISK 294.6 billion, compared to a surplus of ISK 20.0 billion for 2015.

13 júní 2017Hlutföll kynja í nefndum velferðarráðuneytisins Velferðarráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum sem skipaðar eru á vegum ráðherra velferðarráðuneytisins, líkt og skylt er samkvæmt jafnréttislögum. Hlutfall kvenna var 53,7% og karla 46,3% í nefndum ráðuneytisins sem skipaðar voru á síðasta ári.
13 júní 2017Lýðheilsuvísar gefnir út í annað sinnEmbætti Landlæknis kynnti í gær Lýðheilsuvísa 2017 á kynningarfundi í Hofi á Akureyri. Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan landsmanna og gera m.a. kleift að skoða stöðuna hvað þetta varðar eftir heilbrigðisumdæmum.
13 júní 2017Ráðherra ávarpar ársfund ILO Félags- og jafnréttismálaráðherra ávarpaði í dag 106. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) sem haldið er í Genf. Þingið sækja á sjötta þúsund fulltrúar atvinnurekenda, samtaka launafóks og ríkisstjórna hvarvetna úr heiminum.
13 júní 2017Fundaði með framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðannaFélags- og jafnréttismálaráðherra átti í gær fund með framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) í Genf. Þeir ræddu um aðstæður flóttafólks, neyðarástandið fyrir botni Miðjaðarhafs og í Afríku og mikilvægi skipulagðrar móttöku kvótaflóttafólks.
13 júní 2017Skýrsla um kosti og galla aðskilnaðar viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemiHinn 9. mars 2017 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða kosti og galla þess að aðskilja viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi.
13 júní 2017Starfshópur um úrbætur á sviði skattskila af erlendri ferðaþjónustustarfsemiFjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að vinna tillögur að aðgerðum til úrbóta vegna ábendinga sem fram hafa komið um ójafna samkeppnisstöðu íslenskra ferðaþjónustuaðila gagnvart erlendum keppinautum, einkum á sviði hópferðastarfsemi.
13 júní 2017Hlutverk upplýsingatækni í bættum ríkisrekstriFjármála- og efnahagsráðuneytið stóð í dag fyrir fundi um upplýsingatæknimál ríkisins þar sem rætt var um hlutverk upplýsingatækninnar í bættum ríkisrekstri.
13 júní 2017Skýrsla starfshóps um kosti og galla aðskilnaðar viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemiHinn 9. mars 2017 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða kosti og galla þess að aðskilja viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi. Starfshópurinn hefur nú afhent fjármála- og efnahagsráðherra skýrsluna.
12 júní 2017Dómsmálaráðherra sótti ráðherrafund um Schengen samstarfiðSigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sótti ráðherrafund í Lúxemborg í tengslum við Schengen samstarfið í síðustu viku. Meðal helstu málefna fundarins voru fyrirhugaðar breytingar á Schengen upplýsingakerfinu, nýtt evrópskt upplýsingakerfi um ferðaheimildir, útlendinga- og hælismál, endursendingar útlendinga og öryggismál.
12 júní 2017Öryggismál rædd á fundi þjóðaröryggisráðsÞjóðaröryggisráð kom saman í dag og fór yfir ýmis mál er tengjast almennt öryggisvörnum landsins í nútíð og framtíð. Í þjóðaröryggisráði sitja 11 fulltrúar. Forsætisráðherra er formaður ráðsins og stýrir fundum þess.
09 júní 2017Rödd Íslands sterk á hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New YorkÞessa vikuna fer fram ráðstefna Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um heimsmarkmið samtakanna sem samþykkt voru árið 2015 og snúa að málefnum hafsins.
09 júní 2017Nr. 317/2017 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Svíþjóðar er staðfest.
09 júní 2017Ísland fullgildir viðbótarbókun um sjálfsstjórn sveitarfélagaViðbótarbókun við Evrópusáttmála um sjálfsstjórn sveitarfélaga um rétt íbúa til þátttöku í málefnum sveitarstjórna hefur verið fullgilt af Íslands hálfu. Fullgildingin hefur verið tilkynnt Evrópuráðinu og gengur í gildi 1. september 2017.
09 júní 2017Átaksverkefni um umbætur í flutningum og samgöngumFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hrundið af stað verkefni sem miðar að því að gera samgöngur og flutninga á vegum eins tæknilega og framast er unnt. Auka á samkeppnishæfni greinarinnar, gera hana umhverfisvænni og að starfsskilyrði innan greinarinnar verði sanngjörn þeim ellefu milljónum manna sem þar starfa.
09 júní 2017Úrskurður nr. 326/2017
Dyflinnarmál, Danmörk, rannsóknarregla, sérstaklega viðkvæm staða, ákvörðun ÚTL staðfest

09 júní 2017Mál nr. 80/2017
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara.

Ekki fyrir hendi nægilega glögg mynd af fjárhag skuldara skv. b-lið 1. mgr. 6. gr. lge. Rangar eða villandi upplýsingar um mikilsverðar aðstæður í málinu skv. d-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

Sparnaður í greiðsluskjóli skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Stofnað til nýrra skulda á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skv. d-lið 1. mgr. 12. gr.…
08 júní 2017Átt þú hagsmuna að gæta í viðskiptum við MERCOSUR-ríkin?Nú eru að hefjast fríverslunarviðræður EFTA við MERCOSUR-tollabandalagið.
08 júní 2017Alþjóðavæðing helsta umræðuefni tveggja daga fundar OECDTveggja daga ráðherrafundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) lauk í París í dag. Yfirskrift fundarins að þessu sinni, og jafnframt helsta umræðuefni, var alþjóðavæðingin og hvernig færa mætti ávinning hennar betur til almennings.
08 júní 2017Ný ferðatilskipun Evrópusambandsins tryggir aukin réttindi ferðamannaFimmtudaginn 15. júní 2017 verður haldinn kynningarfundur um nýja ferðatilskipun Evrópusambandsins sem mun koma til framkvæmda 1. júlí 2018.
08 júní 2017Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið júlí – desember 2017Miðvikudaginn 17. maí 2017 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu samkvæmt reglugerð nr. 1004/2016 fyrir tímabilið júlí – desember 2017.
08 júní 201744 umsækjendur um embætti umboðsmanns barna46 umsóknir bárust um embætti umboðsmanns barna sem forsætisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar 5. maí síðastliðinn en tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka.
08 júní 2017Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum júlí – desember 2017Miðvikudaginn 17. maí 2017 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu samkvæmt reglugerð nr. 1004/2016 fyrir tímabilið júlí – desember 2017.
08 júní 2017The Ocean Conference: Fyrsti leiðtogafundur SÞ um úthöfin
Rúmlega fimm þúsund þátttakendur eru komnir til New York á fyrsta leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um málefni úthafanna. Átta þjóðarleiðtogar sækja ráðstefnuna, sjö forsætisráðherrar og 77 aðrir ráðherrar. Til marks um umfang ráðstefnunnar eru hliðarviðburðir 150 talsins.

08 júní 2017Eitt hundrað milljónum króna úthlutað til þriggja borgarasamtaka vegna mannúðarverkefnaUtanríkisráðuneytið hefur úthlutað ríflega 100 milljónum kr. til þriggja íslenskra borgarasamtaka til mannúðaraðstoðar. Ráðuneytið auglýsti í mars eftir styrkumsóknum og var umsóknarfresturinn til 15. apríl. Alls bárust þrettán styrkumsóknir frá fjórum borgarasamtökum að heildarupphæð ríflega 270 milljónum króna.
08 júní 2017Börn án bernsku
Að minnsta kosti 700 milljónir barna í heiminum fá ekki að njóta bernskunnar af ýmsum ástæðum og eru í raun svipt því að fá að vera börn og um leið þeim réttindum sem því fylgja. Því má segja að bernskan sé hrifsuð af þeim.

08 júní 2017Rauði krossinn á Íslandi veitir 200 milljónum til nauðstaddra í Suður-Súdan, Sómalíu og Jemen"Ísland fékk í raun umfangsmikla efnahagsaðstoð í kjölfar seinni heimsstyrjaldar sem gerði okkur kleift að brjótast úr fátækt og til vel stæðs samfélags. Við erum því lifandi og gott dæmi um hvernig utanaðkomandi stuðningur skiptir höfuðmáli til að verða sjálfbjarga og geta svo lagt að mörkum til annarra þjóða sem standa í þeim sporum sem við áður gerðum að hluta til," segir Kristín S.…
08 júní 2017Empwr peysa til styrktar konum á flótta
Íslenska barnafatamerkið iglo+indi í samstarfi við landsnefnd UN Women á Íslandi kynna empwr peysuna. Peysan er hönnuð bæði fyrir börn og fullorðna og er þetta í fyrsta sinn sem iglo+indi hanna einnig flík fyrir fullorðna.

08 júní 2017Hjálparstarf kirkjunnar veitir mannúðaraðstoð í Sómalíu vegna þurrka og uppskerubrestsÍ júníbyrjun sendi Hjálparstarf kirkjunnar 15,8 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar í Sómalíu vegna þurrka og langvarandi ófriðar í landinu. Markmiðið er að tryggja 60.600 manns nægan aðgang að fæðu, vatni og hreinlætisaðstöðu. Utanríkisráðuneytið veitti 15 milljóna króna styrk til aðstoðarinnar en það er Hjálparstarf norsku kirkjunnar sem stýrir starfinu á vettvangi.
08 júní 2017SOS: Tólf þúsund stríðshrjáð börn í Miðafríkulýðveldinu fá stuðning
Átökin í Miðafríkulýðveldinu er eins og fram kemur í fréttinni hér að ofan þau sem eru mest vanrækt í heiminum að mati Norska flóttamannaráðsins. Einn af sex styrkjum sem utanríkisráðuneytið veitti á dögunum til mannúðarmála fer til Miðafríkulýðveldisins þar sem SOS Barnaþorpin á Íslandi eru með verkefni.

08 júní 2017Hvað vekur minnstu athygli heimsins í mannúðarmálum?
Hvað vekur minnstu athyglina í heiminum þegar kemur að mannúðarmálum? Norræna flóttamannaráðið (NRC) hefur svarið: Þegar Afríkubúar neyðast til að flýja heimili sín.…
08 júní 2017Þekking þróar sjávarútvegFyrir nokkru kom út grein í Journal of Food Engineering um áhrif umhverfishita og bið hráefnis við flakavinnslu. Greinin byggir á rannsókn sem unnin var í tengslum við áherslur Íslendinga í þróunarsamvinnu, hvar lagt er upp með að nýta sérþekkingu Íslendinga á sviði fiskvinnslu.
08 júní 2017Fjögur verkefni Rauða krossins á Íslandi fá styrk frá ráðuneytinu
Rauði krossinn á Íslandi hlaut styrki frá utanríkisráðuneytinu að upphæð 75 milljónir króna vegna fjögurra mannúðarverkefna. Verkefnin eru í Jemen, Suður-Súdan, Sýrlandi og Sómalíu.

08 júní 2017Eitt af hverjum fjórum börnum í heiminum rænt bernskunni
Að minnsta kosti 700 milljónir barna í heiminum fá ekki að njóta bernskunnar af ýmsum ástæðum og þau eru í raun svipt því tækifæri að fá að vera börn og um leið þeim réttindum sem því fylgja. Ísland er í áttunda sæti lista um hvar bernsku barna er síst ógnað í heiminum. Í efstu sætunum eru Noregur, Slóvenía og Finnland. Níger er hins vegar í botnsæti listans á eftir Angólu og Malí.