12. okt. 2026Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Mannréttindaráð SÞ
Utanríkisráðherra fundaði með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ræddu þau á fundi sínum um þær áskoranir sem blasa við hvað varðar stöðu mannréttindamála og virðingu fyrir lýðræði og alþjóðalögum á heimsvísu, samstarf Íslands og skrifstofu mannréttindafulltrúa (e. Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR) og starf Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.