Mannfjöldasjóður SÞ (UNFPA)
Hlutverk Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) er að tryggja kyn- og frjósemisheilbrigði og frjósemisréttindi í þróunarríkjum. Stofnunin vinnur að kyn- og frjósemisheilbrigðismálum, aðgengi að mæðravernd og tryggingu frjósemisréttinda. UNFPA er leiðandi í að veita þjónustu við þolendur kynferðisbrota, þar á meðal á átakasvæðum.
Í gildi er rammasamningur milli íslenskra stjórnvalda og UNFPA sem veitir heildstæða umgjörð um samstarfið. Á undanförnum hafa kjarnaframlög Íslands til UNFPA aukist mikið, m.a. sem viðbragð við miklu bakslagi þegar kemur að kyn- og frjósemisréttindum.
Umfang starfsemi UNFPA er mikið og rekur stofnunin verkefni í 156 löndum. Samstarf Íslands við UNFPA á vettvangi er víðfeðmt. Þannig er samstarf við UNFPA um útrýmingu fæðingarfistils í öllum tvíhliða samstarfsríkjum Íslands í Afríku auk samstarfsverkefnis gegn kynfæralimlestingum kvenna og stúlkna í Síerra Leóne. Einnig styður Íslands sérstaklegavið starfsemi UNFPA í Úkraínu og Afganistan. Þá styðja íslensk stjórnvöld við samstarfsverkefni UNICEF og UNFPA um afnám limlestinga á kynfærum kvenna og stúlkna sem starfrækt er í 18 löndum.
Sjá nánar um samstarf við UNFPA í tvíhliða þróunarsamvinnu.
Fjölþjóðleg samvinna
Var efnið hjálplegt?