Samráðsfundir með innviðaráðherra 2025
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hélt opna íbúafundi í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins í ágúst 2025 undir yfirskriftinni Fjárfest í innviðum til framtíðar. Sjö fundir voru haldnir í Borgarnesi, á Ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjanesbæ. Fundirnir sem voru öllum opnir voru allir mjög vel sóttir og umræður líflegar.
Tilgangur fundanna var að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra.
Dagskrá funda í ágúst
| Dags. | Staðsetning (salur) | Skráning | Fundartími |
|---|---|---|---|
| 12. ágúst | Akureyri (Múlaberg) | Lokið | 16:45-18:15 |
| 13. ágúst | Borgarnes (Hjálmaklettur) | Lokið | 16:30-18:00 |
| 18. ágúst | Reykjanesbær (Radisson Park Inn) | Lokið | 16:30-18:00 |
| 19. ágúst | Ísafjörður (Edinborgarhúsið) | Lokið | 16:30-18:00 |
| 20. ágúst | Selfoss (Hótel Selfoss) | Lokið | 16:30-18:00 |
| 25. ágúst | Blönduós (Hótel Blönduós, Krúttið) | Lokið | 16:30-18:00 |
| 26. ágúst | Egilsstaðir (Hótel Hérað) | Lokið | 16:30-18:00 |
| 28. ágúst | Innviðaþing (Hilton Nordica) | Lokið | allan daginn |
Reglulegt samráð
SJÁ EINNIG:
Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.
Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - irn@irn.is