06 mars 2013Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Frumvarp um meðhöndlun úrgangs kynnt í ríkisstjórn
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur lagt fram í ríkisstjórn frumvarp um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs. Í frumvarpinu er m.a. lögð til ákveðin forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs, sem felur í sér að dregið verði úr myndun úrgangs. Sá úrgangur sem myndast verði endurnotaður, endurunninn eða endurnýttur og loks fargað ef ekki reynist unnt að nýta hann.