25 febrúar 2007Utanríkisráðuneytið
Fundir utanríkisráðherra með ráðamönnum í Úganda
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, átti í heimsókn sinni til Úganda fundi með ráðamönnum í Kampala. Á fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Úganda, Sam Kutesa, var ástand mála í norðurhluta landsins rætt og vonir stjórnvalda um að flóttamenn geti sem fyrst snúið aftur til heimkynna sinna.