24 ágúst 2011Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viðey í Þjórsá friðuð
Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir undirritaði í dag friðlýsingu Viðeyjar í Þjórsá. Viðey er sérstök, m.a. fyrir þær sakir að vegna árinnar í kring er þar að finna lítt snortinn og gróskumikinn birkiskóg sem vaxið hefur án teljandi áhrifa mannsins. Í Viðey hafa fundist yfir 70 háplöntutegundir, þar af tvær tegundir sem eru sjaldgæfar á landsvísu.