16 nóvember 2007Mennta- og barnamálaráðuneytið
Bætt þjónusta við blinda, sjónskerta og daufblinda
Á fundi ríkisstjórnarinnar 16.nóvember voru kynntar tillögur framkvæmdanefndar sem skipað var að frumkvæði menntamálaráðherra í maí sl. með fulltrúum frá menntamála-, félagsmála- og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Blindrafélaginu.