20 janúar 2013Innviðaráðuneytið
CEN/BII2 viðamikil útgáfa um rafræn innkaup
Þann 6. desember síðastliðinn héldu CEN, Staðlasamtök Evrópu málþing um útgáfu BII2 vinnunefndarinnar, undir yfirskriftinni "Aukin samvirkni í rafrænum innkaupum í Evrópu". Afurðir hópsins kallast CWA (CEN Workshop Agreement) sem er útgáfa á rafrænum skjölum, viðskiptaferlum, leiðbeiningum og verkfærum fyrir rafræn innkaup.