15 febrúar 1999Heilbrigðisráðuneytið
Gæðaáætlun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis
Skipuleg gæðastjórnun og gæðatrygging hafa rutt sér til rúms í heilbrigðisþjónustu á undanförnum árum. Margar heilbrigðisstofnanir hafa sett sér viðmið í gæðamálum, fagfélög hafa unnið óeigingjarnt grasrótarstarf og á vegum Gæðastjórnunarfélags Íslands starfar heilbrigðishópur.